Tæplega 2.300 manns hafa kosið í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík það sem af er degi, að sögn Gísla Kr. Björnssonar, formanns Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Segir hann kjörsókn hafa verið með besta móti og að fjöldinn sé svipaður og í prófkjörinu sem fram fór 2013.
Kjörstöðum verður lokað kl. 18 og fyrstu talna er að vænta kl. 19.
Uppfært kl 16:15: Áður hafði komið fram að 600 manns hefðu kosið í prófkjörinu, en það var fjöldi kjósenda milli kl. 14 og 15 í dag.