Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, og Líf Magneudóttir borgarfulltrúi tóku þátt í rafrænni kosningu hjá VG í Reykjavík á skrifstofu flokksins við Túngötu í morgun.
Kosning fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hófst á vefsíðu Vinstri grænna á miðnætti og lýkur klukkan 17 í dag.
Forsætisráðherra kýs rafrænt.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Valið verður í fimm efstu sætin á framboðslista VG. Valið er leiðbeinandi og leggur kjörnefnd endanlegan lista 46 frambjóðenda fyrir félagsfund VG í Reykjavík.
Alls keppa ellefu félagar í Vinstri grænum um sæti.
Líf með símann í hendi við kosninguna.
mbl.is/Kristinn Magnússon
Nýr oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkur verður valinn því oddviti VG frá í síðustu kosningum býður sig ekki fram. Líf er ein í framboði í 1. sæti.
Frambjóðendur í forvalinu eru, í stafrófsröð, eftirfarandi:
- Björn Teitsson blaðamaður, býður sig fram í 3. sæti.
- Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi, býður sig fram í 2. sæti.
- Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari, býður sig fram í 3.-5. sæti.
- Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi, býður sig fram í 2-4. sæti.
- Hermann Valsson grunnskólakennari, býður sig fram í 3. sæti.
- Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm leikkona, býður sig fram í 4. sæti.
- Jakob S. Jónsson leiðsögumaður, býður sig fram í 4-5. sæti.
- Líf Magneudóttir borgarfulltrúi, býður sig fram í 1. sæti.
- Ragnar Karl Jóhannsson, uppeldis- og tómstundafræðingur, býður sig fram í 4.-5. sæti.
- René Biasone, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, býður sig fram í 4. sæti.
- Þorsteinn V. Einarsson æskulýðsfulltrúi, býður sig fram í 3. sæti.