Björt framtíð, Samfylking, Píratar, Viðreisn, Vinstri græn og óháðir ætla að taka höndum saman í sameiginlegu framboði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Garðabæ í vor.
Þetta kemur fram í stuttri fréttatilkynningu um hið nýja framboð. Þar segir að kynning á listanum fari fram á morgun, fimmtudag, í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi klukkan 17.
Sjá Facebook-síðu um kynningarfundinn.