Kjörstaðir voru opnaðir klukkan níu, en kosið verður til sveitarstjórna í 71 sveitarfélagi. Á Ísafirði mætti Birgir Sveinsson fyrstur manna á kjörstað, en þrír listar eru þar í framboði að þessu sinni.
Á kjörskrá til sveitarstjórnakosninga eru liðlega 248 þúsund manns og eru það um 8.200 fleiri en í kosningunum fyrir fjórum árum. 12 þúsund erlendir ríkisborgarar eru á kjörskrá fyrir.
Frekar rólegt var yfir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar og höfðu í gær 19.732 greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar um kjörstaði og hvar fólk sé á kjörskrá er að finna á vefnum www.kosningar.is.
Kjörstöðum verður lokað í síðasta lagi klukkan 22 í kvöld og búast má við fyrstu tölum úr talningu fljótlega eftir það.
Öflug fréttavakt verður á mbl.is í dag og fram á nótt. Ítarlega verður fjallað um sveitarstjórnarkosningarnar, framkvæmd þeirra og niðurstöður um land allt og verða þeim gerð skil í fréttum, fréttaskýringum, myndskeiðum, viðtölum, grafískri framsetningu á nýjustu tölum og fleiru.
Fjölmennur hópur blaðamanna, fréttaritara og ljósmyndara verður á vaktinni frá morgni og fram eftir nóttu. Þá verður fjallað ítarlega um úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Morgunblaðinu á mánudaginn.