Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir að ekki komi til greina að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur starfi saman í borgarstjórn. Frá þessu greindi hann í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í borginni og fékk átta menn kjörna inn í borgarstjórn. Samfylkingin kemur þar á eftir með sjö borgarfulltrúa.
Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi spurði Dag hvort hann og Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, væru útilokaðir samstarfsmenn. „Já, í mínum huga,“ svaraði Dagur.
„Mér finnst það hafa svolítið kristallast að við deilum framtíðarsýn fyrir Reykjavík með mjög mörgum flokkum sem voru að bjóða fram í borgarstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn er ekki einn af þeim. Á meðan það er þannig þá eru einfaldlega ekki fletir,“ sagði Dagur jafnframt.
Eyþór sagði að málefnin væru það sem skiptu máli og að niðurstaða kjósenda í borginni væri afdráttarlaus, það er ákall um breytingar. „Ákallið er skýrt. Það á að mynda breytingastjórn sem tekur á vandanum, það er húsnæðisvandi, umferðarvandi og kerfisvandi.“