„Dagurinn er liðinn og allir mínir fundir búnir.“ Þetta segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í borginni, í samtali við mbl.is. „Svo bara tökum við stöðuna.“
„Ég er búin að funda með Sjálfstæðismönnum og fyrrverandi meirihluta. Við ræddum málefnin og áttum mjög góða fundi,“ segir Þórdís Lóa. „Svo eru mögulega einhverjir að tala við einhverja aðra.“
Þórdís Lóa segir að staðan verði metin og að á morgun sé enn ekkert sérstakt á dagskrá. „Við flýtum okkur hægt. Við vinnum þetta af festu og öryggi þegar við förum af stað. Ég geri ráð fyrir því að allir flokkar hugsi svipað. Það eru engar formlegar viðræður byrjaðar.“