L-listinn, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta á Akureyri. Flokkarnir störfuðu saman í meirihluta á síðasta kjörtímabili og héldu allir tveimur mönnum í bæjarstjórn í kosningunum um síðustu helgi.
„Við tekur áframhaldandi vinna við málefnasamning sem flokkarnir mun leggja fyrir sitt bakland til samþykktar. Nýr meirihluti mun ráða bæjarstjóra," segir í yfirlýsingu frá oddvitum flokkanna í kvöld, Höllu Björk Reynisdóttur Guðmundi Baldvin Guðmundssyni og Hildu Jönu Gísladóttur.