Þór Steinarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps. Var ráðning hans staðfest á fundi sveitarstjórnar í dag, að því er fram kemur í frétt á vef sveitarfélagsins.
Þór er með meistaragráðu í stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá árinu 2012, þar af sem aðstoðarmaður sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar sl. fimm ár.
Þór tekur til starfa hjá Vopnafjarðarhreppi 1. ágúst 2018.
Fimmtán sóttu um stöðuna, drógu þrír umsókn sína til baka.