Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við Ásthildi Sturludóttur um að taka að sér starf bæjarstjóra á Akureyri. Hún tekur við af Eiríki Birni Björgvinssyni sem var bæjarstjóri síðustu átta ár.
Alls sóttu 18 um starf bæjarstjóra en 2 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Eftir úrvinnslu umsókna og viðtöl ákvað meirihluti bæjarstjórnar að ganga til samninga við Ásthildi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
Ásthildur starfaði sem bæjarstjóri í Vesturbyggð frá árinu 2010. Hún er uppalin í Stykkishólmi og er með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MPA-gráðu (Master of Public Administration) í opinberri stjórnsýslu frá PACE University í New York. Ásthildur starfaði áður sem verkefnisstjóri á rektorsskrifstofu og markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands. Hún var einnig verkefnisstjóri við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og atvinnuráðgjafi hjá SSV-þróun og ráðgjöf.