Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti fyrr í vikunni drög að breytingum á reglugerðum um blóðgjöf. Breytingarnar fela meðal annars í sér að ekki megi lengur mismuna blóðgjöfum á grundvelli kynhneigðar.
Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir blóðbankans, hefur í samtali við mbl.is sagst telja drögin varhugaverð.
Segir hann mikilvægt að breytingar séu innleiddar með faglegum hætti sem tryggi öryggi í hvívetna, með svipuðum hætti og önnur lönd hafi gert.
Tillaga Svandísar sé „einhvers konar óðagot“ sem geti „skapað óvissu og áhættu í heilbrigðisþjónustu“.
Aðspurð segist Svandís ekki vilja tjá sig um málið á meðan það er í samráðsgátt stjórnvalda.
„Málið er í samráðsgátt og við sjáum hvaða athugasemdir koma þar fram á meðan sá frestur gengur yfir,“ segir Svandís, sem stefnir að því að ljúka málinu fyrir kosningar.
„Þetta mál hefur verið á dagskrá hjá mér um langt skeið og mér finnst mikilvægt á meðan viljinn er alveg skýr af minni hálfu að gera það sem ég get til þess að ljúka því,“ segir Svandís.