Yfirkjörstjórnin biðst afsökunar

Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi.
Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi. Ljósmynd/Dómsmálaráðuneytið

Yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi harmar þá stöðu sem er komin upp vegna starfa hennar á talningarstað í kosningunum. Biður yfirkjörstjórnin frambjóðendur og kjósendur afsökunar, en tekið er fram að talningarfólk og starfsfólk á talningarstað hafi sinnt starfi sínu af heilindum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá yfirkjörstjórninni.

Lýsir hún því að ábyrgðin á stöðunni sé alfarið yfirkjörstjórnar og óskar þess að starfsmenn verði ekki dregnir í umræðuna um málið. Þá er tekið fram að yfirkjörstjórnin og einstakir fulltrúar hennar muni ekki tjá sig frekar um málið að sinni.

Undir yfirlýsinguna rita Ingi Tryggvason, formaður, Bragi R. Axelsson, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Guðrún Sighvatsdóttir og Katrín Pálsdóttir, en yfirlýsingin er send út af Berglindi Lilju Þorbergsdóttur, starfsmanni yfirkjörstjórnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert