Inga Þóra Pálsdóttir
Ákvörðun Birgis Þórarinssonar, um að yfirgefa Miðflokkinn og ganga í Sjálfstæðisflokkinn, er sem hnífsstunga í bakið.
Þetta segir Guðni Hjörleifsson, sem skipaði fjórða sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi, í samtali við mbl.is.
Guðni rak kosningaskrifstofu fyrir flokkinn og lagði á sig að safna atkvæðum. Hann segist hafa átt í góðu samskiptum við Birgi og ákvörðun hans hafi því komið á óvart.
„Ég er bara mjög ósáttur við þessa ákvörðun og skil hana ekki,“ segir hann.
„Þetta er hnífstunga í bakið – að maður skuli hafa lagt þvílíka vinnu, og tekið hluta af sumarfríinu sínu, í að berjast fyrir að koma manni inn.“