Samfélagsmiðlar loga vegna fregna um að Birgir Þórarinsson hafi sagt sig úr Miðflokknum og ætli að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokksins. Afleiðingarnar eru þær að einungis tveir þingmenn Miðflokksins standa eftir, þeir Sigumundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason.
Birgir sagði í samtali við Morgunblaðið í dag að rekja megi ákvörðun hans allt aftur til uppákomunnar á Klaustri þar sem þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins sátu saman og létu ýmis umdeild ummæli falla um aðra þingmenn og fleiri.
Umrædd uppákoma átti sér stað fyrir þremur árum síðan og þykir því mörgum netverjum heldur seint í rassinn gripið.
Eftir allan þennan tíma sitjandi á þingi með Miðflokknum eftir Klaustursmálið ákveður þessi maður NÚ er mér nóg boðið 😡
— ✨ Inga Boogie ✨ (@Inga_toff) October 9, 2021
Ég hef aldrei á ævi minni séð jafn mikla tækifærismennsku í verki https://t.co/lurHLjvSkP
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, segir þessa ákvörðun Birgis sýna að staða Miðflokksins sé ekki góð.
Formaðurinn nennir ekki að mæta í sjónvarpssett daginn eftir kosningar og einn af þremur þingmönnum farinn áður en þing kemur saman. Hið svellkalda mat er að framtíð Miðflokksins er kannski ekki sú bjartasta.
— Pawel Bartoszek (@pawelbartoszek) October 9, 2021
Þeir sem kusu Birgi í Suðurkjördæmi héldu sig væntanlega vera að kjósa Miðflokksmann en nú er Birgir orðinn Sjálfstæðismaður. Jónas Már Torfason, sem virðist ekki vera kjósandi Miðflokksins segir hegðun Birgis jaðra við kosningasvik.
Þetta jaðrar nú bara við kosningasvik? Væri sennilega mjög reiður kysi ég Miðflokkinn pic.twitter.com/5CSV3DOTfl
— Jónas Már (@JTorfason) October 9, 2021
Lýðræði? Hvað er það? Kv Birgir í Sjálfstæðisflokknum
— Daníel Freyr (@danielfj91) October 9, 2021
Egill Helgason fjölmiðlamaður segist hafa talið víst að Birgir myndi taka þetta skref. Í ummælum við færslu hans á Facebook spyr Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvort Birgir sé með þessu að reyna „hefna sín“ á Sjálfstæðisflokknum.
Netverjar fara ekki fögrum orðum um Birgi, sem Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis kallar mannleysu vegna orðræðu hans í kringum frumvarp heilbrigðisráðherra um þungunarrof.
Þessi mannleysa var óbærilega hreinskilin um vantraust sitt á konum í umræðunni um þungunarrof. pic.twitter.com/zt13lLdVi0
— Kjartan Hreinn (@kjartanhn) October 9, 2021
Árni Páll Árnason, fyrrum ráðherra, tjáir sig um málið:
Félagaskiptaglugginn opnar snemma á þessu kjörtímabili
— Árni Páll Árnason (@ArniPallArnason) October 9, 2021
Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar og fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, segir að snúningur Birgis hljóti að jaðra við Íslandsmet.
Það eru greinilegar sveiflur á miðgenginu.
— Golli - Kjartan Þorbjörnsson (@gollmundur) October 9, 2021
Og voru bara allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og aðrir Sjálfstæðismenn til í að fá þetta í sínar raðir? Ekki alveg þær nútímalegu raddir sem manni finnst sumt yngra fólkið þar vera að reyna að koma að! https://t.co/8ydIQ1J01u
— Hjálmar Gíslason (@hjalli_is) October 9, 2021