Lenya Rún Taha Karim, frambjóðandi sem skipaði þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningum, gagnrýnir Jóhann Pál Jóhannsson, nýkjörinn þingmann Samfylkingarinnar, fyrir ummæli hans sem birtust í Morgunblaðinu í dag.
Jóhann Páll, sem komst inn eftir að talið var aftur í Norðvesturkjördæmi, á sama tíma og Lenya Rún datt út, sagðist aðspurður sjá tvo möguleika í stöðunni sem uppi er eftir kosningarnar.
Annars vegar að það verði uppkosning í Norðvesturkjördæmi eða þá að lokatalningin gildi.
Sjálf skilaði Lenya inn kæru til kjörbréfanefndar Alþingis í síðustu viku vegna kosninganna.
„Mér sýnist, ef maður skoðar bæði lögin um kosningar til Alþingis og horfir raunsætt á pólitísku stöðuna, að valmöguleikarnir séu helst tveir. Annaðhvort verði farið í uppkosningu í Norðvesturkjördæmi - það er það sem lögin gera ráð fyrir ef misbrestirnir eru svo miklir að Alþingi telji að það eigi að ógilda kosninguna - eða þá að lokatalningin, sem yfirstjórnin í Norðvestur skilaði af sér, gildi,“ sagði Jóhann Páll.
„Verkefni kjörbréfanefndar samkvæmt þingskapalögum er að rannsaka þau kjörbréf sem gefin hafa verið út og svo tekur Alþingi í heild afstöðu til þess hvort þingmenn séu löglega kosnir, samanber 46. grein stjórnarskrár.“
Þá sagðist hann ekki sjá í stöðunni að fyrri talning í Norðvesturkjördæmi verði látin gilda.
„Ég hef ekki séð skynsamleg lagarök fyrir því að það verði tekið fram fyrir hendur yfirkjörstjórnar og tölur sem voru tilkynntar fyrr í talningarferlinu í Norðvesturkjördæmi látnar gilda, ég sé ekki að það geti orðið niðurstaðan.“
Bætti hann við að hann sæi ekki fyrir sér að kosningarnar yrði dæmdar ógildar á landsvísu.
Lenya Rún virðist taka þetta óstinnt upp, eða eins og hún orðar það í tísti nú fyrir hádegi:
„Þingmaður sem komst inn á seinni tölum í NV-kjördæmi sér bara tvennt í stöðunni: uppkosning eða seinni tölur. Seinni tölur byggja augljóslega á spilltum kjörgögnum - er það svona sem [Jóhann Páll] ætlar að byrja baráttu gegn spillingu og óheiðarleika á þingi?“ spyr Lenya.
Jóhann Páll svarar fyrir sig:
„Ég bendi á að þetta eru möguleikarnir sem kosningalög og þingsköp gera ráð fyrir, ég styðji kæru vegna framkvæmdar í NV og það geti vel farið svo að ég greiði atkvæði gegn lögmæti eigin kosningar. Spillt eða óheiðarlegt? Verður bara hver að dæma fyrir sig.“