„Það er búið að negla það niður að ríkisstjórnin verði kynnt á morgun. Í rauninni er bara verið að fara í gegnum stjórnarsáttmálann og annað slíkt í dag á þessum stofnanafundum hjá flokkunum,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, í samtali við mbl.is.
Bjarkey segir að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hafi ekki enn upplýst þingflokkinn um skiptingu ráðherraembætta. „Það verður væntanlega kynnt í dag.“
Að sögn Bjarkeyjar mun flokksráð flokksins funda frá tvö til fimm í dag. „Það er ekki komið boð um þingsflokksfund en það er ekki ólíklegt að það verði annað hvort í dag eða í fyrramálið.“
Að sögn Birgis Ármannssonar, þingsflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, mun þingflokkur flokksins hittast klukkan hálftvö í dag. Að honum loknum er flokksráðsfundur klukkan þrjú.
Spurð hvort að þau geri ráð fyrir að þingflokkarnir muni leggja blessun sína yfir ríkisstjórnarsamstarfið segjast bæði Bjarkey og Birgir eiga von á því.
„Eins og ævinlega verða örugglega skiptar skoðanir líkt og vera ber en ég á ekki von á öðru en að þetta verði samþykkt. Það kæmi mér á óvart ef það yrði ekki,“ segir Bjarkey.
„Stofnanir flokksins hafa endanlegt ákvörðunarvald um það hvort við tökum þátt í þessu stjórnarsamstarfi eða ekki og það er borið undir flokksráðið. Ég á þó ekki von á öðru en að tillaga formanns verði samþykkt,“ segir Birgir í samtali við mbl.is.
Ekki náðist í Willum Þór Þórsson, þingflokksformann Framsóknar, við vinnslu þessarar fréttar.