Ragnar Sigurðsson, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, gefur kost á sér í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð í prófkjöri flokksins sem fer fram í lok febrúar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ragnari.
Hann er fertugur lögfræðingur með meistaragráðu í forystu og stjórnun.
Ragnar starfar sem framkvæmdastjóri hjá RAUST ehf. en áður gegndi hann starfi framkvæmdastjóra hjúkrunarheimila Fjarðabyggðar. Þá var hann til þriggja ára ritstjóri Austurgluggans.
Ragnar hefur verið virkur í bæjarmálum Fjarðabyggðar á undanförnum árum og verið aðalmaður í bæjarstjórn frá 2019 og einnig setið í bæjarráði frá 2020.
Ragnar leggur áherslu á ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins þannig að því sé gert kleift að byggja upp til framtíðar án frekari skuldsetningar. Hann er talsmaður bættra samgangna þar sem höfuðáhersla hans er á uppbyggingu Suðurfjarðarvegar sem forgangsframkvæmd í samgöngumálum fjórðungsins.
Í tilkynningunni segir Ragnar mikilvægt að halda áfram að stuðla að frekari uppbyggingu atvinnulífsins sem er forsenda áframhaldandi fjölgunar íbúa og bættrar þjónustu. „Mikilvægt er að lækka álögur á lítil og meðalstór fyrirtæki og gera þeim kleift að vaxa enn frekar samhliða kröftugri uppbyggingu atvinnulífs í Fjarðabyggð.“
Þá telur Ragnar það miklu skipta að „auka samvinnu innan samfélagsins í Fjarðabyggð á vettvangi atvinnulífsins, menningarmála, æskulýðsstarfs og íþróttamála.“
Þá eru málefni eldri borgara Ragnari hugleikin en þörf er á fjölbreyttari úrræðum fyrir eldra fólk í Fjarðabyggð, bæði búsetukosti og úrræða á borð við dagþjónustu eldri borgara.