Árni Rúnar sækist eftir þriðja sætinu

Árni Rúnar vill þriðja sætið hjá Framsókn í Hafnarfirði.
Árni Rúnar vill þriðja sætið hjá Framsókn í Hafnarfirði.

Árni Rúnar Árnason, tækjamaður í Suðurbæjarlaug og varaformaður umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 14. maí næstkomandi.

„Ég er fæddur og uppalinn í Hafnarfirði, giftur og á fjóra uppkomna syni. Ég er tækjamaður í Suðurbæjarlaug og hef starfað þar í að verða 16 ár. Síðustu 4 ár hef ég verið varaformaður umhverfis- og framkvæmdaráðs,“ segir í tilkynningu frá Árna. 

„Ég vil halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið í Hafnarfirði á síðustu tæpum fjórum árum. Verk Framsóknar hafa náð í gegn og skilað okkur betri bæ. Ég óska eftir tækifæri til að halda áfram á þeirri vegferð og styðja enn frekar við öflugt velferðarsamfélag í Hafnarfirði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert