Hjörtur sækist eftir 4. sæti í Mosfellsbæ

Hjörtur sækist eftir 4. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.
Hjörtur sækist eftir 4. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ. Ljósmynd/Aðsend

Hjörtur Örn Arnarson landfræðingur gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, en hann sækist eftir 4. sæti. Prófkjörið fer fram þann 5. febrúar næstkomandi.

Hjörtur er 45 ára landfræðingur frá Háskóla Íslands og með framhaldsmenntun í kortagerð og landmælingum frá Danmörku. Hann er giftur Klöru Gísladóttur kennara í Helgafellsskóla og eiga þau saman 3 börn. Hjörtur hefur starfað í verkfræðigeiranum í hátt í 20 ár og komið að skipulagsmálum, verklegum framkvæmdum, landmælingum og kortagerð. Hann hefur tekið þátt í starfi Aftureldingar í gegnum tíðina, sem leikmaður, þjálfari og sjálfboðaliði.

„Ég býð fram krafta mína í bæjarpólitíkinni í Mosfellsbæ og óska eftir stuðningi í 4. sætið. Ég hlakka til að takast á við spennandi verkefni í þágu bæjarbúa í þeirri miklu uppbyggingu sem fram undan er í sveitarfélaginu. Ég hef lengi haft áhuga á sveitastjórnarmálum þótt ég hafi aldrei starfað í stjórnmálum og tel mig hafa margt fram að færa. Ég lít á mig sem hinn venjulega bæjarbúa sem langar að gera bæinn okkar enn betri,“ segir Hjörtur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert