Stefán Pálsson vill í borgarstjórn

Stefán Pálsson.
Stefán Pálsson. Ljósmynd/mbl.is

Stefán Pálsson sagnfræðingur sækist eftir öðru sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í prófkjöri flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. 

Þetta staðfestir Stefán í samtali við mbl.is. 

Stefán hefur verið virkur á hinu pólitíska sviði frá unglingsaldri en segir að áhugi sinn á borgarmál hafa aukist jafnt og þétt síðustu ár.

Stefán er kvæntur Steinunni Þóru Árnadóttur þingmanni, saman eiga þau tvo syni.

Fyrir eru þrjú í framboði til fyrsta sætis á listann, Líf Magneudóttir sitjandi borgarfulltrúi, Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi og Elín Björk Jónasdóttir hóp­stjóri veðurþjón­ustu Veður­stofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert