Ásgeir leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Mosfellsbæ

Ásgeir Sveinsson leiðir lista Sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Ásgeir Sveinsson leiðir lista Sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ljósmynd/Ásgeir Sveinsson

Ásgeir Sveinsson mun leiða Sjálfstæðisflokkinn í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórarkosningar, en hann atti kappi við Kolbrúnu Þorsteinsdóttur um fyrsta sætið.

Úrslit í prófkjöri flokksins í Mosfellsbæ urðu ljós rétt í þessu og var Ásgeir atkvæðamestur.

1044 greiddu atkvæði og voru gild atkvæði 1010. Kjörsókn var 44,2%.

Niðurstöður prófkjörsins eru eftirfarandi:

1. Ásgeir Sveinsson, 69,0% gildra atkvæða í 1. sæti. 

2. Jana Katrín Knútsdóttir, 37,6% gildra atkvæða í 1.-2. sæti. 

3 Rúnar Bragi Guðlaugsson, 42,5% gildra atkvæða í 1.-3. sæti. 

4. Kolbrún G. Þorsteinsdóttir, 40,8% gildra atkvæða í 1.-4. sæti.

5. Hjörtur Örn Arnarson, 47,2% gildra atkvæða í 1.-5. sæti.

6. Arna Hagalínsdóttir, 43,3% gildra atkvæða í 1.-6. sæti.

7. Hilmar Stefánsson, 49,2% gildra atkvæða í 1.-7. sæti.

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert