Sigvaldi Egill Lárusson, fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar, býður sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sem fram fer 12. mars.
Sigvaldi er 36 ára fjölskyldufaðir á Kársnesinu, er í sambúð með Hrefnu Sif Jónsdóttur, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Tix. Sigvaldi á stjúpdótturina Elmu, sem verður 8 ára í sumar og er í Kársnesskóla og soninn Lárus, sem er að verða þriggja ára og er á leikskólanum Urðarhól. Sigvaldi þekkir því umgjörð barnafólks í Kópavogi vel og hefur mikinn áhuga á að gera gott betra, að því er segir í tilkynningu.
Ástæða þess að Sigvaldi býður fram þjónustu sína er brennandi áhugi á að hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Að vera stöðugt að leita leiða til að gera enn betur og bæta þjónustu við íbúa bæjarins.
„Ég tel að reynsla mín, menntun og það viðhorf að vera stöðugt að gera betur hafi fullt erindi í bæjarstjórn Kópavogs, með það að markmiði að þjónusta íbúa bæjarins sem best með þeirra hagsmuni ávallt að leiðarljósi.“ segir Sigvaldi í tilkynningunni.
Áherslumálin eru fyrst og fremst málefni fjölskyldunnar, leikskólamálin, velferðarmál og hagkvæmni og skilvirkni í rekstri með sem lægstar álögur á íbúa og fyrirtæki.
Sigvaldi hefur starfsreynslu bæði frá einkageiranum og þeim opinbera. Hann hefur starfað samanlagt í 6 ár sem fjármálastjóri hjá hinu opinbera. Þar af þrjú ár sem fjármálastjóri hjá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands og núverandi starf hans er fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Sigvaldi er með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Í dag er hann í náminu verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun sem hann stefnir á að klára núna í vor. Sigvaldi er einnig í stjórn faghóps straumlínustjórnunar hjá Stjórnvísi.