Níu í framboði í forvali Vinstri grænna á Akureyri

Frambjóðendur í forvali Vinstri grænna á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í …
Frambjóðendur í forvali Vinstri grænna á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Samsett mynd

Níu verða í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna á Akureyri sem fer fram dagana 2. til 5. mars. Í forvalinu verður kosið í efstu sex sætin á framboðslista Vinstri grænna til bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, en niðurstöður fyrir efstu þrjú sætin eru bindandi. 

Eftirfarandi eru í framboði:

  • Ásrún Ýr Gestsdóttir, háskólanemi, í 1. sæti
  • Einar Gauti Helgason, matreiðslumeistari, í 3. sæti
  • Herdís Júlía Júlíusdóttir, iðjuþjálfi, í 6. sæti
  • Hermann Arason, framkvæmdastjóri, í 2.-4. sæti
  • Inga Elísabet Vésteinsdóttir, landfræðingur, í 6. sæti
  • Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, varabæjarfulltrúi, í 1. sæti
  • Ólafur Kjartansson, vélvirki og fyrrv. framhaldskólakennari, í 2. sæti
  • Sif Jóhannesar Ástudóttir, verkefnastjóri, í 2.-6. sæti
  • Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, 4.-6. Sæti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert