Eyjólfur sækist eftir 2. sæti

Eyjólfur Gíslason.
Eyjólfur Gíslason. Ljósmynd/Aðsend

Eyjólfur Gíslason gefur kost á sér 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar. 

Í tilkynningu frá Eyjólfi segir að framboð hans sé til marks um sannfæringu sína að fólk með ólíkan bakgrunn og getu skili samfélaginu okkar bestum árangri.

„Ástæða framboðsins er einlæg löngun til að gera bæinn okkar framúrskarandi á öllum sviðum velferðar, menningar- og íþróttalífs, að ógleymdum umhverfismálum. Ég tala fyrir því að samhliða mikilvægi eflingar grunnstoða samfélags okkar má ekki gleyma að ekkert bæjarfélag er undanskilið þróun samtímans og við því verður að bregðast.
Fegurðin býr í fjölbreytileikanum og öll eigum við að fá tækifæri til að blómstra í fjölmenningarsamfélagi,“ segir í tilkynningu. 

Eyjólfur er 35 ára, fæddur og uppalinn í Reykjanesbæ, þar sem hann býr með syni sínum. Hann er með háskólagráðu í miðlun og almannatengslum og stundar meistaranám í forystu og stjórnun. Hann hefur starfað undanfarin ár hjá Icelandair.

Í öllum samfélögum viðgengst vanlíðan meðal ungs fólks sem sjá ekki eigin getu né kraftinn sem býr innra með þeim. Ég legg ríka áherslu á málefni á sviði geðheilbrigðismála, forvarnarstarfs og líðan bæjarbúa.

Eyjólfur hefur tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins með setu í stjórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka