Alls eru tuttugu og þrír í framboði hjá Pírötum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í vor.
Píratar eiga núna tvo fulltrúa í borginni, þær Alexöndru Briem og Dóru Björt Guðjónsdóttur. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri.
Kosning í prófkjörinu hefst klukkan þrjú í dag og lýkur á sama tíma þann 26. febrúar.
Tveir makar kjörinna fulltrúa Pírata á þingi og í borgarstjórn, eru í framboði.
Það eru þeir Kristinn Jón Ólafsson, maki Halldóru Mogensen formanns þingflokks Pírata, og Sævar Ólafsson, maki Dóru Bjartar sem sækist eftir því að leiða listann aftur. Sævar og Dóra Björt eiga von á barni saman í vor.
Þá vekur einnig athygli blaðamanns að mæðgin Rannveig Ernudóttir og Huginn Þór Jóhannsson eru bæði í framboði.
Í framboði eru: