Þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, sem allir sækjast eftir oddvitasæti flokksins viðurkenna að of hægt hafi gengið að byggja upp leikskólaþjónustu í Urriðaholti.
Þar eru nú 240 börn á leikskólaaldri en aðeins 120 leikskólarými. Þá gera áætlanir ráð fyrir að árið 2024 verði börnin orðin 480.
Bæjaryfirvöld hafa spítt í lófana og undirbúningur að byggingu nýs leikskóla er langt kominn og verið er að koma upp færanlegum skólastofum til þess að mæta brýnustu þörfinni.
Sjálfstæðismenn í Garðabæ velja á framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á morgun, laugardag. Áslaug Hulda Jónsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir og Almar Guðmundsson bítast um fyrsta sætið.