Framboðslisti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var samþykktur samhljóða á fundi Fulltrúarráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrr í dag.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, leiðir listann en hann var efstur í flokksvalinu sem haldið var nú í febrúar. Á eftir Degi á listanum koma Heiða Björg Hilmisdóttir, Skúli Helgason, Sabine Leskopf og Guðný Maja Riba. Er sú röð í samræmi við niðurstöðu flokksvalsins.
Í tilkynningu segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður uppstillingarnefndar, nefndina mjög stolta af framboðslistanum.
Dagur segir listann sigurstranglegan
„Hann endurspeglar fjölbreytileika borgarbúa vel og myndar öfluga liðssveit fyrir borgarstjórann okkar, Dag B. Eggertsson og alla borgarfulltrúa flokksins. Við ætlum okkur að tryggja Samfylkingunni góða kosningu í vor.“
„Listinn er sigurstranglegur, hann er þéttskipaður fólki úr öllum áttum sem elskar Reykjavík og vill halda áfram að sækja fram og þróa borgina sem græna, fjölbreytta borg með öflugri þjónustu þar sem hugað er að velferð og tækifærum til framtíðar og pláss er fyrir alla“ segir Dagur,“ er haft eftir Degi í tilkynningu.
Hér má sjá listann í heild sinni:
- Dagur B. Eggertsson læknir og borgarstjóri
- Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varaformaður Samfylkingarinnar
- Skúli Þór Helgason, borgarfulltrúi
- Sabine Leskopf, borgarfulltrúi
- Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi
- Guðný Maja Riba, kennari
- Sara Björg Sigurðardóttir, Breiðhyltingur og stjórnsýslufræðingur
- Birkir Ingibjartsson, arkítekt
- Ellen Calmon, borgarfulltrúi og fyrrverandi formaður ÖBÍ
- Ragna Sigurðardóttir, unglæknir og borgarfulltrúi
- Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara
- Aron Leví Beck, myndlistarmaður og málarameistari
- Alondra Silva Muñoz, markaðsstjóri
- Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur
- Ólöf Helga Jakobsdóttir, matreiðslumeistari
- Stein Olav Romslo, grunnskólakennari
- Berglind Eyjólfsdóttir, formaður öldungaráðs Reykjavíkur
- Þorleifur Örn Gunnarsson, kennari
- Thomasz Chrapek, tölvunarfræðingur og formaður ProjektPolska.is
- Elva María Birgisdóttir, forseti Nemendafélags MH
- Davíð Sól Pálsson, deildarstjóri á leikskóla
- Valgerður Gréta G. Gröndal, bókmenntafr. og deildarstjóri á leikskóla
- Brandur Bryndísarson Karlsson, frumkvöðull og framtíðarfræðingur
- Aðalheiður Franzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
- Örn Kaldalóns Magnússon, formaður DM félags Íslands
- Hjördís Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun
- Ingiríður Halldórsdóttir, öryrki
- Geoffrey Huntington-Williams, veitingamaður og tónlistarstjóri
- Elísabet Unnur Gísladóttir, háskólanemi
- Konráð Gylfason, framkvæmdastjóri Íshokkísambands Íslands
- Frigg Thorlacius, lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun
- Sigfús Ómar Höskuldsson, rekstrarfræðingur og knattspyrnuþjálfari
- Ragnhildur Berta Bolladóttir, verkefnastjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands
- Rúnar Geirmundsson, framkvæmdastjóri
- Ingibjörg Grímsdóttir, kjaramálafulltrúi hjá Eflingu
- Jódís Bjarnadóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks
- Þóroddur Þórarinsson, þroskaþjálfi
- Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar og kaospilot
- Margrét Pálmadóttir, söngkona
- Hákon Óli Guðmundsson, rafmagnsverkfræðingur
- Barbara Bruns Kristvinsson, ráðgjafi í málefnum innflytjenda
- Gísli Víkingsson, sjávarvistfræðingur
- Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrv. borgarfulltrúi
- Oddný Sturludóttir, menntunarfræðingur og fyrrv. borgarfulltrúi
- Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri
- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri