Valgerður hafnar ellefta sætinu

Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi mun ekki taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi mun ekki taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Ljósmynd/Aðsend

Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi og frambjóðandi í yfirstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun ekki taka sæti á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Þetta kemur fram í færslu Valgerðar á Facebook.

Hún hafnaði í ellefta sæti í gær en óskaði eftir því þriðja.

Valgerður varði þriðja sæti listans í borgarstjórnarkosningunum árið 2018. Þá hélt flokkurinn leiðtogaprófkjör og var öðrum sætum stillt upp á lista.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert