Guðveig leiðir Framsókn í Borgarbyggð

Mynd frá fundinum.
Mynd frá fundinum.

Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi leiðir lista Framsóknar í Borgarbyggð þriðja kjörtímabilið í röð í komandi sveitarstjórnarkosningum. Listinn var kynntur í gærkvöldi.

Í öðru sæti er Davíð Sigurðsson, sveitarstjórnafulltrúi og framkvæmdastjóri, og þriðja sæti listans skipar Eðvarð Ólafur Traustason, flugstjóri og atvinnurekandi.

Finnboga Leifssyni var á fundinum þakkað sérstaklega fyrir starf sitt síðustu áratugi með dynjandi lófaklappi og skipar hann nú heiðurssæti listans.

Listinn í heild sinni

1. Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi

2. Davíð Sigurðsson, framkvæmdastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi

3. Eðvarð Ólafur Traustason, flugstjóri og atvinnurekandi

4. Eva Margrét Jónudóttir, sérfræðingur hjá Matís

5. Sigrún Ólafsdóttir, bóndi og tamningamaður

6. Þórður Brynjarsson, búfræðinemi

7. Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri

8. Weronika Sajdowska, kennari og þjónn

9. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu

10. Þorsteinn Eyþórsson, eldri borgari

11. Þórunn Unnur Birgisdóttir, lögfræðingur

12. Erla Rúnarsdóttir, leikskólakennari

13. Hafdís Lára Halldórsdóttir, nemi

14. Höskuldur Kolbeinsson, bóndi og húsasmiður

15. Sonja Lind Eyglóardóttir, aðstoðarmaður þingflokks

16. Orri Jónsson, verkfræðingur

17. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, alþingismaður

18. Finnbogi Leifsson, sveitarstjórnarfulltrúi og bóndi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert