Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14 í Perlunni í dag.
Áherslur flokksins í borgarstjórnarkosningum verða kynntar í sjö liðum og Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, mun veita viðtöl.
Meðal efna fundarins eru kröftug húsnæðisuppbygging í lifandi hverfum, frjálsir valkostir í samgöngum og umhverfis- og loftslagsmál.