Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur slitið meirihlutaviðræðum við Vini Mosfellsbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinum Mosfellsbæjar.
Greint var frá því í gær að formlegar meirihlutaviðræður í bænum færu af stað um helgina og að flokkarnir fjórir sem að þeim koma, Framsókn, Viðreisn, Samfylking og Vinir Mosfellsbæjar væru að undirbúa viðræður helgarinnar.
Framsóknarflokkurinn fékk fjóra fulltrúa í kosningunum en hinir flokkarnir þrír einn hver. Þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn fjóra fulltrúa kjörna.
„Samkvæmt viðræðuáætlun átti að hittast aftur í morgun og ætluðu fulltrúar Vina Mosfellsbæjar að nýta tímann til að ræða við sitt bakland um ákveðin málefni. Áður en fundir hófust í morgun var viðræðum sliti og óljósar málefnalegar ástæður gefnar fyrir þeirri ákvörðun,“ segir í tilkynningunni frá Vinum Mosfellsbæjar.