Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að flokkurinn skoði ekki aðra möguleika en að vera í bandalagi með Pírötum og Samfylkingunni. Hún er því þar með að loka á viðræður við Sjálfstæðisflokkinn.
Þetta kemur fram í færslu Þórdísar á Facebook en hún sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að lítið væri að frétta af hennar vígsstöðum er kemur að viðræðum um meirihluta í Reykjavík.
„Eins og þekkt er fórum við í Viðreisn í bandalag með Pírötum og Samfylkingu fljótlega eftir kosningar, hvað varðar meirihlutaviðræður. Í því bandalagi erum við af heilum hug. Það er alveg skýrt og við leitum ekki annað,“ segir í færslu Þórdísar.
Hún segir þetta bandalag vera augljós kostur þegar skoðaðar eru málefnaáherslur Viðreisnar í kosningabaráttunni. Sérstaklega er varðar skipulags-, samgöngu- og loftslagsmál.
„Þetta verða helstu og mikilvægustu viðfangsefni næstu fjögurra ára og mikilvægt að vanda þar til verka.“
Þórdís segir að Viðreisn vilji því láta á bandalagið reyna með því að hefja formlegar meirihlutaviðræður með Framsóknarflokknum.
„ Með þessum fjórum flokkum næðist starfhæfur og öflugur meirihluti að okkar mati.“