Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, bauð fyrir hádegi til blaðamannafundar ásamt oddvitum Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.
Áður hafði Framsóknarflokkurinn boðið bandalagi hinna þriggja flokkanna til formlegra viðræðna um myndun meirihluta í borgarstjórn.
Fundurinn hófst klukkan 11 og var haldinn í Grósku. Hér að neðan munu birtast viðtöl við oddvita flokkanna um leið og þau berast.