Flestir vilja sjá Einar Þorsteinsson sem borgarstjóra í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu.
Spurt var: Ef svo fer að Framsókn, Píratar, Samfylkingin og Viðreisn mynda samanborgarstjórn í Reykjavík, hvern af oddvitum þessara flokka myndir þú helst
vilja hafa sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur?
Einar er oddviti Framsóknar sem kunnugt er og 52,5% vilja sjá hann sem borgarstjóra af þeim oddvitum sem eru í nýkjörinni borgarstjórn.
Dag B. Eggertsson, sem gegnt hefur embættinu undanfarin ár og mun gera áfram í 18 mánuði, nefndu 23,3%. 18,3 sögðust vilja sjá Dóru Björt Guðjónsdóttur oddvita Pírata sem næsta borgarstjóra og 5,9% nefndu Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur oddvita Viðreisnar.
Ef marka má niðurstöðu þessarar könnunnar Maskínu er borgarstjórinn ansi umdeildur. 49,% sögðust síst vilja Dag B. Eggertsson sem næsta borgarstjóra. 19,1% nefndu Einar, 18,4% sögðu Dóru og 13% nefndu Þórdísi.