Regína ráðin bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi …
Regína er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi síðastliðin fimm ár. Ljósmynd/Aðsend

Regína Ásvalds­dótt­ir hef­ur verið ráðin bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæj­ar fyr­ir kjör­tíma­bilið 2022-2026. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Mos­fells­bæ.

Alls sóttu 30 manns um starfið.

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Akra­ness

Regína er sviðsstjóri vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur­borg­ar og hef­ur gegnt því starfi síðastliðin fimm ár. Áður gegndi hún stöðu bæj­ar­stjóra Akra­nes­kaupstaðar árin 2013-2017. Þá hef­ur hún starfað sem fram­kvæmda­stjóri Festu, fé­lags um sam­fé­lags­lega ábyrgð fyr­ir­tækja, verið skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu borg­ar­stjóra og sviðsstjóri þjón­ustu- og rekstr­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar.

„Ég þakka kær­lega fyr­ir það traust í minn garð sem mér er sýnt með ráðning­unni. Mos­fells­bær er gott og fjöl­skyldu­vænt sam­fé­lag í örum vexti og hér eru mörg tæki­færi þegar til framtíðar er litið. Ég hlakka til að starfa með öfl­ug­um bæj­ar­full­trú­um og góðu starfs­fólki Mos­fells­bæj­ar að þeim mik­il­vægu verk­efn­um sem eru framund­an,“ er haft eft­ir Regínu í til­kynn­ing­unni.

Regína er með meist­ara­próf í hag­fræði frá Há­skól­an­um í Aber­deen, diplóma í op­in­berri stjórn­sýslu og cand. mag. í fé­lags­ráðgjöf frá Há­skól­an­um í Osló. Á ferli sín­um hef­ur hún átt sæti í fjöl­mörg­um stjórn­um og starfs­hóp­um, nú síðast starfs­hópi sem skilaði til­lög­um um hús­næðismál til þjóðhags­ráðs í maí síðastliðnum. 

Regína með stór­an skammt af al­mennri skyn­semi

Áætlað er að Regína hefji störf í byrj­un sept­em­ber en ráðning­ar­samn­ing­ur­inn tek­ur form­lega gildi þegar hann hef­ur verið staðfest­ur af bæj­ar­ráði fimmtu­dag­inn 14. júlí.

 „Framund­an eru stór verk­efni, meðal ann­ars í upp­bygg­ingu og áfram­hald­andi fjölg­un íbúa og stefnu­mót­un til framtíðar. Þessi verk­efni fela í sér fjöl­breytt­ar áskor­an­ir og því mik­il­vægt að við fáum til liðs við okk­ur ein­stak­ling með mikla og far­sæla reynslu, stór­an skammt af al­mennri skyn­semi, þjón­ustu­lund og brenn­andi áhuga á mál­efn­um sveit­ar­fé­lags­ins,“ er haft eft­ir Höllu Kar­en Kristjáns­dótt­ur, for­manni bæj­ar­ráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert