Aldrei spurður út í umhverfismál

Jón Gnarr furðar sig á því hvers vegna hann hefur …
Jón Gnarr furðar sig á því hvers vegna hann hefur aldrei verið spurður út í umhverfismál. mbl.is/Eyþór Árnason

Jón Gnarr segist aldrei hafa verið spurður út í umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni sinni til forseta Íslands. Umhverfismálin séu „dauðans alvara.“

Jóni virtist vera heitt í hamsi í þegar umræða spannst um hagsmuni ungs fólks í kappræðum Vísis í kvöld. Þar ræddust á þeir sex frambjóðendur sem mælast hæstir í fylgiskönnunum.

Jón benti á að hann hafi margoft verið spurður út í málskotsrétt forsetans, sem hann myndi sennilega sjaldan þurfa að beita. En hafi hann verið spurður út í umhverfismál „sem eru dauðans alvara.“

Halla Tómasdóttir skaut inn í samtalið að frambjóðendur hefðu verið spurðir út í „uppáhaldsmatinn“ sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert