Halla Tómasdóttur forsetaframbjóðandi situr nú í öðru sæti í nýrri skoðanakönnun. Marktækur munur er milli fylgis Höllu og Katrínar Jakobsdóttur, sem gnæfir nú yfir öðrum frambjóðendum.
Katrín mælist með 25,7% fylgi, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem Stöð 2 kynnti í kvöldfréttum sínum fyrir stundu.
Á meðan hefur leiftursókn Höllu sent hana upp í annað sætið, með 18,6%. Þó er ekki marktækur munur á Höllu Tómasdóttur, Baldri Þórhallssyni, með 18,2%, og Höllu Hrund Logadóttur, 16,6%. Þau deila í raun öðru sætinu.
Jón Gnarr er í fjórða sæti með 12,4% fylgi og fylgir þar á eftir Arnar 5,4% fylgi. Hinir frambjóðendurnir eru samanlagt með 3,1%.
Eins og greint var frá í morgun þykir Halla Tómasdóttir hafa staðið sig best í umræðunni í aðdraganda forsetakosninganna, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup.