„Við höfum svolítið framselt stjórn landsins“

Hagsmunir Íslendinga verða settir í fyrsta sæti ef Kári Allansson og Lýðræðisflokkurinn komast til valda.

Kári, sem er oddviti Lýðræðisflokksins í Reykjavík suður, segir mikla þjónkun við alþjóðastofnanir á Íslandi og að menn hafi lagst flatir gagnvart öllu sem kemur frá Evrópu í gegnum EES-samstarfið.

„Við höfum svolítið framselt stjórn landsins eitthvað annað,“ segir Kári.

Stjórn á landamærunum

Lýðræðisflokkurinn vill taka stjórn á landamærunum en Kári segir flóttamannastraum til Evrópu stórt vandamál sem blasi við öllum og vísar til ástandsins á Norðurlöndunum.

„Við viljum stíga stór skref og taka upp vegabréfsáritun.“

Flokkurinn vill að horfið verði frá miðstýringu í öllum kerfum og haldið í átt að meira valfrelsi, sem fæst með meiri einkarekstri. „Við viljum aðskilja greiðslur fyrir þjónustuna og reksturinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka