Lóðaskortur ekki vandamálið

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Ingvar Þórodds­son, odd­viti Viðreisn­ar í Norðaust­ur­kjör­dæmi, seg­ir að vext­ir, verðbólga og heil­brigðismál brenni mest á fólk í Norðaust­ur­kjör­dæmi.

    Biðlist­ar eru lang­ir, að hans sögn, og fólk þarf oft að ferðast lang­ar vega­lengd­ir til þess að sækja heil­brigðisþjón­ustu sem hann seg­ir að þurfi að bæta.

    Fast­eigna­markaður­inn er of­ar­lega í huga fólks en Ingvar seg­ir að það sé ekki endi­lega lóðaskort­ur sem er vanda­málið. Nefn­ir sem dæmi að það sé hús­næðis­skort­ur á Rauf­ar­höfn en það sé ekki vegna lóðaskorts held­ur ein­fald­lega vegna þess að það er of dýrt að byggja.

    Hann ger­ir lítið úr álykt­un Viðreisn­ar um að banna ný­skrán­ingu dísil- og bens­ín­bíla á næsta ári og seg­ir að það standi ekki til. Málið hef­ur valdið úlfúð meðal margra og þá ekki síst hjá lands­byggðarmönn­um. Sjálf­ur seg­ir Ingvar að hann sé ekki hrif­inn af boðum og bönn­um.

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert
    Loka