Ásgerður Flosadóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins, hefur sagt sig úr flokknum og um leið öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Segir hún í tilkynningu að ástæðan sé sú að hún sjái ekki neinn vilja til breytinga innan flokksins. Telur hún að flokkur sem geti ekki haft stjórn á innri málefnum sé ekki nægjanlega trúverðugur til að taka þátt í þeirri endurreisn sem sé framundan í íslensku þjóðfélagi. Rúm vika er liðin frá því Ásgerður var kjörin varaformaður Frjálslynda flokksins.
„Fyrir nokkru var ég kjörin varaformaður Frjálslynda flokksins. Ég hef starfað fyrir Frjálslynda flokkinn af heilindum frá því að ég gekk í flokkinn á haustmánuðum 2006 og reynt að fá flokksfólk til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum.
Ég hef gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn m.a. verið formaður Landssambands kvenna í Frjálslynda flokknum, setið í miðstjórn flokksins og einnig skipaði ég annað sæti flokksins við þingkosningar 2007 í Reykjavík Norður. Stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar verða að bera virðingu fyrir sínum innri reglum og lögum og rækta af samviskusemi og koma fram við félaga sína af virðingu en á það hefur skort í FF.
Ég hef gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að starfsmannamálum og mörgu fleiru í æðstu yfirstjórn flokksins. Nú er hins vegar ljóst að formaður flokksins ætlar sér ekki að að gera nauðsynlegar breytingar á starfsmannahaldi flokksins. Þá hefur því verið hafnað að standa löglega að uppstillingu á framboðslista flokksins í Suðvestur kjördæmi en ég hef ítrekað gert athugasemdir við að uppstilling flokksins í því kjördæmi sé ólögleg þar sem ekki hafi verið boðað til fundar með löglegum hætti.
Þann tíma sem ég hefi gengt starfi varaformanns Frjálslynda flokksins sé ég ekki að vilji sé til neinna breytinga. Flokkur sem virðist ekki geta haft stjórn á sínum innri málefnum er ekki nægilega trúverðugur að mínu mati, en nauðsynlegt er að stjórnmálaflokkar njóti trúverðugleika í þeirri endurreisn og uppbygginu sem framundan er í íslensku þjóðfélagi.
Ég hef því ákveðið að segja af mér öllum trúnaðarstörfum á vegum flokksins þar með talið varaformennsku í flokkum og formennsku í Landssambandi kvenna í Frjálslynda flokknum og mun ekki taka sæti á framboðslista flokksins í næstu alþingiskosningum. Jafnframt tilkynni ég hér með að ég segi mig úr Frjálslynda flokknum frá og með deginum í dag. Ég vil þakka öllum þeim fjölmörgu samstarfsmönnum traustið sem þeir hafa sýnt mér og óska flokknum velfarnaðar," að því er segir í yfirlýsingu frá Ásgerði Flosadóttur.