Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir samstarf við Sjálfstæðisflokkinn mjög langsótta hugmynd. Flokkarnir séu andstæðir pólar í borgarmálunum. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir það skyldu borgarfulltrúa að reyna að starfa saman fyrir Reykvíkinga.