Húðvörur fyrir íslenskar aðstæður

Aveeno er heimsþekkt húðvörumerki sem hefur notað vísindi og tækni …
Aveeno er heimsþekkt húðvörumerki sem hefur notað vísindi og tækni til að nýta kraft náttúrunnar fyrir þurra og viðkvæma húð í yfir 75 ár. Vörulínur Aveeno eru því sérlega hentugar fyrir íslenskar aðstæður þar sem kalt veðurfar veldur gjarnan þurrki í húð. Ljósmynd/Aðsend

Nýverið komu húðvörurnar Aveeno inn á íslenskan markað en vörulínur Aveeno eru sérlega hentugar fyrir íslenskar aðstæður þar sem kalt veðurfar veldur gjarnan þurrki í húð. Aveeno er heimsþekkt húðvörumerki sem hefur notað vísindi og tækni til að nýta kraft náttúrunnar fyrir þurra og viðkvæma húð í yfir 75 ár. Það er því ekki að ástæðulausu að Aveeno vörurnar hafa farið sigurför um heiminn undanfarin ár og hlotið ófáa gæðastimpla í gegnum tíðina.

Aveeno Skin Relief húðolían er ein af vinsælustu vörunum frá …
Aveeno Skin Relief húðolían er ein af vinsælustu vörunum frá Aveeno en hún inniheldur hafra og jojoba-olíu. Hún nærir húðina og veitir þurri og viðkvæmri húð raka. Aveeno Skin Relief handáburðurinn veitir raka í allt að 72 klukkustundir, með samfelldri fjögurra vikna notkun, um leið og hann róar þurrar og viðkvæmar hendur.

Þurrkur, exem og kláði á bak og burt 

Allar vörulínur Aveeno státa af vörum á borð við rakakrem, handáburð, líkamskrem, húðolíu, sjampó, sturtugel og fleiri vörum. Vörulínur Aveeno eru þrjár og allar eru þær prófaðar af húðsjúkdómalæknum og henta því fyrir viðkvæma húð. Eins eru allar vörurnar án parabena og litarefna.

Aveeno Skin Relief er fyrir þurra, mjög þurra og viðkvæma húð. Aveeno Dermexa er fyrir mjög þurra húð og húð sem hefur tilhneigingu að fá exem og kláða og má nota fyrir alla fjölskylduna. Þó er Dermexa sturtugelið aðeins fyrir þriggja ára og eldri. Nýjasta lína Aveeno er Daily Moisturising sem er fyrir venjulega og þurra húð.

Í húðvörum Aveeno er fyrst og fremst stuðst við náttúruleg …
Í húðvörum Aveeno er fyrst og fremst stuðst við náttúruleg efni sem hafa góð áhrif á heilbrigði húðar og til að mynda er mikilvægasta innihaldsefnið blanda úr höfrum. Ljósmynd/Aðsend

Krafturinn liggur í þrefaldri blöndu úr höfrum

Í framleiðslunni hjá Aveeno er fyrst og fremst stuðst við náttúruleg efni sem hafa góð áhrif á heilbrigði húðar og til að mynda er mikilvægasta innihaldsefnið í Aveeno blanda úr höfrum. Hafrarnir hjálpa til við að endurbyggja og bæta náttúrlegar varnir húðarinnar. Þannig örva hafrarnir vöxt góðra baktería í húðinni og styðja við náttúrulega örveruflóru húðarinnar, húðin fær raka og næringu, mýkist og verður teygjanlegri.

Aveeno Daily Moisturising Bodylotion mýkir húðina og veitir raka í …
Aveeno Daily Moisturising Bodylotion mýkir húðina og veitir raka í allt að 48 tíma, með samfelldri fjögurra vikna notkun. Ljósmynd/Aðsend

Fínmalaðir hafrar hafa rakagefandi eiginleika og koma í veg fyrir rakatap. Þeir hjálpa til við að örva vöxt góðra baktería og viðhalda þannig náttúrulegri örveruflóru. Hafraolía er vökvi sem unnin er úr hafrakorni, olían er náttúrulega rík af lípíðum sem er mikilvæg byggingareining fyrir heilbrigt varnarkerfi húðarinnar. Hafraþykkni er þekkt fyrir náttúruleg andoxunarefni, róandi og kláðastillandi eiginleika.

Aveeno húðvörurnar eru fáanlegar í Hagkaup sem og öllum helstu apótekum landsins, þar á meðal Apótekaranum, Lyf og heilsu, Lyfjavali, Farmasíu, Urðarapóteki, Íslandsapóteki, Siglufjarðarapóteki, Akureyrarapóteki, Apóteki Vesturlands, Apóteki Suðurlands, Rimaapóteki og Apóteki Garðabæjar.

Aveeno Dermexa rakakrem hentar sérstaklega fyrir mjög þurra húð og …
Aveeno Dermexa rakakrem hentar sérstaklega fyrir mjög þurra húð og húð sem hefur tilhneigingu að fá kláða og exem. Kremið hjálpar til við að endurheimta jafnvægi í náttúrulegri örveru húðarinnar frá fyrsta degi. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert