Heilsuinniskórnir frá Kosy hafa notið ómældra vinsælda síðustu ár í Betra Bak. Að sögn Lárusar Gunnsteinssonar, skósmíðameistara og skóhönnuðar, er það ekki að ástæðulausu. „Þægindin eru svo mikil að allir þreytuverkir eru á bak og burt um leið og þú stígur í skóna,“ segir Lárus sem býr yfir viðamikilli reynslu og þekkingu á skóhönnun og skósmíði í tengslum við heilsu fólks.
„Hönnunin heyrir til vöðva- og beinabyggingu líkamans, æða og sina og tekur mið af almennum líkamsburði.“
Inniskórnir frá Kosy stuðla að bættri líkamsstöðu og vellíðan fyrir allan líkamann en skórnir eru búnir fjölmörgum eiginleikum sem sýnt hafa jákvæð áhrif á líkamsstöðu fólks og leiða til betra heilsufars í kjölfarið.
Innleggið er búið púðum sem ætlað er að örva viðbragðssvæði í fótum sem mynda jafnvægi á milli áreynslu og afslöppunar, dregur úr spennu og eykur blóðflæði. Að sögn Lárusar er hugsað fyrir hverju smáatriði við hönnun á skónum þar sem líkamsburður og skrefafjöldi meðalfólks er hafður til hliðsjónar ásamt lögun fóta í hverri stærð fyrir sig.
„Inniskór eru mikið notaðir og því þarf að gæta vel að innlegginu. Við notum inniskó bæði heima, í vinnunni og alls staðar. Heilsufarslegi ávinningurinn sem hlýst af því að ganga um í þessum inniskóm er mjög mikill,“ segir Lárus.
„Við vorum að taka upp nýjustu skóna okkar sem eru í raun hannaðir fyrir árið 2025. Þeir eru ofboðslega fallegir og maður fær hálfgerðan valkvíða ef maður á að velja sér skó. Það er mögnuð staðreynd að inniskór hafa verið ein vinsælasta jólagjöfin á eftir bókinni í vestrænum löndum. Ég hef unnið við skósmíði og skóviðgerðir ásamt hönnum á skóm fyrir fatlaða allan minn starfsferil.
Og það er þannig að þegar draumar manns rætast þá fara menn og konur að hringja til að spyrja hvernig á að leysa alls kyns vandamál í skóhönnun. Þannig hófst samstarf mitt og Betra Bak en auðvitað eru Kosy skórnir til víða annars staðar á Íslandi sem og í Lúxemborg, Bretlandi og víðar. Þeir hafa reyndar verið sérstaklega vinsælir í Bretlandi undanfarið eftir töluverða fjölmiðlaumfjöllun þar,“ segir Lárus hógvær að lokum.