Jólastemningin er komin í stærstu veiðibúð landsins, Veiðihornið, enda er það gjarnan vinsæll áfangastaður viðskiptavina í desember sem og aðra mánuði. Í Veiðihorninu er mesta úrval landsins af veiðibúnaði sem og vörum fyrir almenning og útivistarfólk. Það er því lítið mál að finna jólagjöf fyrir veiðimanninn sem og aðra í versluninni. Til að mynda hafa jóladagatölin verið sérstaklega vinsæl í aðdraganda jóla, að sögn Ólafs Vigfússonar en hann og eiginkona hans, María Anna Clausen eiga Veiðihornið.
„Við ákváðum að láta framleiða jóladagatöl fyrir fluguveiðimenn fyrir þremur árum sem við köllum 24 flugur til jóla og það sló strax í gegn. Í ár bjóðum við upp á tvenna svoleiðis pakka; laxaflugur og silungaflugur. Þetta eru mjög skemmtileg dagatöl því það er ekki bara ein fluga á dag heldur færðu líka QR kóða þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hvernig á að nota fluguna, söguna á bak við fluguna eða uppskriftina að flugunni. Það er sem sagt alltaf einhverjar frekari upplýsingar sem fylgja með.“
Það má finna alls kyns nytsamlegar jólagjafir fyrir veiðimenn sem og aðra í Veiðhorninu en það er ein vinsæl gjafahugmynd sem vekur sérstaka eftirtekt; flugur í áskrift. „Við byrjuðum í fyrra að bjóða upp á flugur í áskrift og það varð strax mjög vinsæl jólagjöf. Vægast sagt sló þetta algjörlega í gegn, bæði hjá þeim sem gefur gjöfina sem og þeim sem þiggur hana. Hægt er að kaupa þriggja eða sex mánaða áskrift og hvort heldur sem er laxaflugur eða silungaflugur. Þiggjandinn fær þá fyrsta pakkann undir jólatréð og svo kemur annar pakkinn í janúar, þriðji pakkinn í febrúar og svo framvegis,“ segir Ólafur og bætir við að eins hafi gjafabréf Veiðihornsins notið mikilla vinsælda.
„Við bjóðum upp á tvær gerðir gjafabréfa. Annars vegar eru það falleg og persónulega gjafabréf sem eru keypt í verslun okkar að Síðumúla 8 og hins vegar snjöll rafræn gjafabréf sem hægt er að kaupa í netverslun Veiðhornsins.“
Veiðihornið var stofnað árið 1998 og aðspurður hvað sé á bak við velgengni og langan lífaldur verslunarinnar segir Ólafur að það sé dugnaður, vinnusemi og heiðarleiki. „Það er bara svoleiðis og stundum þarf ansi mikinn dugnað. Sérstaklega á sumrin en þá eru langir dagar sjö daga vikunnar. Veiðimönnum fer sífellt fjölgandi, við finnum það ár frá ári að nýliðun er góð og mikil í veiði. Síðustu ár hefur konum líka fjölgað sérstaklega mikið. En þótt við séum fyrst og fremst veiðiverslun þá bjóðum við upp á vörur sem henta öllum almenningi sem og öllu útivistarfólki. Í raun erum við með vörur sem höfða til allra.
Til að mynda hafa ferðakaffivélarnar okkar algjörlega slegið í gegn, hvort sem þær eru frá Wacaco eða Outin en þær síðarnefndu ganga fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu sem hægt er að hlaða í bílnum. Þá eru kælitöskurnar frá Yeti ótrúlega skemmtilegar og frá þeim erum við líka með kælikistur, flöskur og alls kyns glös sem henta fyrir alla á ferðinni. Svo eru Sealskinz vörurnar okkur ómissandi í jólapakkann því það eru vatnsheldir sokkar, hanskar og húfur sem er ómetanlegt í allri útivist.“