Fjölbreytnin eykur arðsemi

Hanna Dögg er meðlimur í Félagi kvenna í atvinnulífinu og …
Hanna Dögg er meðlimur í Félagi kvenna í atvinnulífinu og hefur fundist gaman að hitta aðrar konur í viðskiptalífinu. mbl.is/Aðsend

Hanna Dögg Maronsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Bústólpa segir margt hafa breyst í fyrirtækinu á undanförnum árum með tilkomu flottra kvenleiðtoga.

„Það væri kannski miklu flottara ef ég væri að vinna í fjármálageiranum núna. Mín persónulega skoðun er hins vegar sú að matvælaframleiðsla skipti samfélagið gríðarlega miklu máli. Hún er ein af grunnstoðunum og tryggir okkur matvælaöryggi sem er mikilvægt á tímum stríðs og óróleika. Það geta orðið mikil umbrot á skömmum tíma og þá þurfum við að geta verið sjálfbær með mat,“ segir Hanna Dögg Maronsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Bústólpa.

Það er auðheyrt á Hönnu Dögg hversu vænt henni þykir um íslenskan landbúnað „Já, heldur betur. Ég hef reynt að leggja mitt af mörkum í gegnum sölu- og markaðsmál Bústólpa; að vera með jákvæða ásýnd á iðnaðinn. Bara það hvaða myndefni við veljum skiptir máli fyrir kynningu á hinum íslenska bónda, hvort sem hann er kona eða karlmaður. Mér finnst svolítið leiðinleg sú ásýnd að sýna bóndadurga í lopapeysu á mynd með ónýtan girðingarstaur þegar hinn dæmigerði bóndi, eins og ég þekki hann, er venjulegur einstaklingur sem rekur flott fyrirtæki með mikinn tæknibúnað. Við eigum langt í land með að efla ásýnd matvælaframleiðenda í landinu ef við miðum okkur við sum önnur ríki í heiminum þar sem stolt og virðing er borin fyrir slíkum störfum,“ segir Hanna Dögg.

Hönnu Dögg þykir einstaklega vænt um íslenskan landbúnað og finnst …
Hönnu Dögg þykir einstaklega vænt um íslenskan landbúnað og finnst leiðinleg sú ásýnd að sýna bóndadurga í lopapeysu á mynd með ónýtan girðingarstaur þegar hinn dæmigerði bóndi, eins og hún þekkir hann, er venjulegur einstaklingur sem rekur flott fyrirtæki með mikinn tæknibúnað. mbl.is/Aðsend

Matvælaöryggi skiptir Íslendinga miklu máli

Bændur á Íslandi leggja mikinn metnað í rekstur sinn að sögn Hönnu Daggar. „Bændur leggja mikið upp úr dýravelferð og að framleiða gæðavörur. Þeir eru upp til hópa mjög hagsýnir í rekstri og hafa metnað fyrir því að halda byggð í landinu og að tryggja að við séum að framleiða heilbrigð og góð matvæli fyrir Íslendinga. Þar liggur metnaður þeirra að mínu mati,“ segir Hanna Dögg sem hefur unnið fyrir Bústólpa á Akureyri frá árinu 2015. Bústólpi er eitt af undirstöðufyrirtækjum landsins í matvælaframleiðslu. „Við veltum þremur milljörðum á ári og þjónustum bæði svæðin í kringum okkur og einnig landið allt. Stærsti hluti starfseminnar og veltunnar er að framleiða kjarnfóður fyrir nautgripi, kindur og eggjabú. Við erum þess vegna stór hlekkur í matvælaöryggi landsins.“

Bústólpi hefur vakið athygli fyrir góðan rekstur. „Við höfum verið á lista Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2011 og verið valin fyrirmyndarfyrirtæki Keldunnar og Viðskiptablaðsins frá árinu 2017 svo dæmi séu tekin. Við erum 30 einstaklingar sem störfum fyrir Bústólpa og það sem ég er hvað stoltust af er að við höfum hlotið Jafnvægisvogina síðastliðin tvö ár frá FKA þar sem yfir helmingur stjórnenda í fyrirtækinu er konur,“ segir Hanna Dögg.

Karlmenn njóta góðs af auknu jafnrétti

Þegar Hanna Dögg byrjaði að vinna fyrir Bústólpa voru tvær konur í fyrirtækinu. „Bústólpi hefur breyst mikið frá því að ég byrjaði, en lengi vel var einungis ein kona hér. Í dag leggjum við meiri áherslu á fjölbreytileika. Við höfum til marks um það fengið inn fleira kvenfólk, erum með hærra menntunarstig og breiðara aldursbil svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Hanna Dögg.

Hvað breytist í fyrirtækjum þegar hugað er að jafnrétti og því að rétta hlut kvenna?

„Vinnustaðurinn verður nútímalegri fyrir vikið. Karlmenn njóta einnig góðs af auknu jafnrétti þar sem það myndast meira jafnvægi á milli einkalífs og vinnu. Þá kemur fjölbreyttari sýn inn í fyrirtækið. Eins gerir jafnrétti og fjölbreytileiki starfsmannahópinn sterkari. Svo má ekki gleyma því að við höfum náð gríðarlega góðum fjárhagslegum árangri með því að fá fjölbreyttara fólk inn í starfsmannahópinn okkar svo það hefur einnig áhrif á arðsemina,“ segir Hanna Dögg sem er sjávarútvegsfræðingur að mennt.

Hún segir tilviljun eina hafa ráðið því að hún hóf að starfa í matvælaframleiðslu en hún vann hjá Mjólkursamsölunni í sölu-, markaðs- og gæðamálum í áratug áður en hún fór yfir í Bústólpa. „Því má segja að ég hafi starfað í framleiðsluiðnaði í 20 ár. En þegar ég var nýútskrifuð úr sjávarútvegsfræðinni sótti ég um starf hjá Norðurmjólk sem seinna varð Mjólkursamsalan. Á þessum tíma voru tveir karlkyns yfirmenn sem ákváðu að ráða til sín unga konu sem þeir höfðu trú á. Annar þessara manna var Hólmgeir Karlsson. Hann hætti nokkrum árum eftir að ég byrjaði og varð framkvæmdastjóri Bústólpa. Hann bauð mér svo seinna starf hjá Bústólpa sem ég tók,“ segir Hanna Dögg.

Konurnar í sjávarþorpinu höfðu áhrif

Þegar talið berst að fyrirmyndum segist Hanna Dögg muna eftir mörgum sterkum konum úr æsku sinni. „Ég er alin upp á Ólafsfirði sem er sjávarútvegspláss og þótt ekki hafi verið mikið um hefðbundnar sterkar kvenfyrirmyndir úr viðskiptalífinu þar á þeim tíma má ekki gleyma því að eiginkonur og dætur sjómanna eru sjálfstæðar konur sem veigra sér ekki við að ganga í öll verk. Ég er alin upp við að foreldrar mínir, Halldóra Garðarsdóttir og Maron Björnsson, voru í fyrirtækjarekstri og tók móðir mín þátt í þeim rekstri af miklum krafti eins og faðir minn gerði. Þegar ég var að alast upp var ég mjög meðvituð um að ég gæti gert það sama og strákarnir.“

Það var ekki fyrr en Hanna Dögg fór að taka þátt í atvinnulífinu sem hún fór að skilja út á hvað kynjamisréttið gengi. Stundum var hún eina konan á fjölmennum fundi og tókst á við krefjandi áskoranir í karllægum iðnaði. „Ég nýtti þá reynslu mína til að ryðja veginn fyrir þær konur sem vinna fyrir okkur núna sem eru ótrúlega sterkar og flottar konur sem skipta fyrirtækið miklu máli.“

Hvetur stjórnendur til að ryðja brautina

Hanna Dögg er með jákvætt viðhorf til kvennafrídagsins og ætlar að halda upp á hálfrar aldar afmæli hans með pompi og prakt, á Akureyri. „Það eru ennþá hlutir sem við þurfum að berjast fyrir, því finna ungar konur fyrir þegar þær stíga út á vinnumarkaðinn. Ég vil ekki að mínar konur upplifi sama mótlætið og ég hef gert, þótt ég hafi líka unnið með mörgum frábærum karlmönnum sem hafa sýnt mér virðingu.“

Hanna Dögg er meðlimur í Félagi kvenna í atvinnulífinu og hefur fundist gaman að hitta aðrar konur í viðskiptalífinu. Þegar hún er spurð um ráð til ungra kvenna sem eru að feta sín fyrstu spor í atvinnulífinu má heyra að hún vill hafa þær nákvæmlega eins og þær eru. „Það er okkar stjórnenda að ryðja brautina fyrir ungar konur. Við gerum það með því að stíga inn í sannleikann um að okkur gengur betur með fjölbreyttari hópi. Ég vil hafa konur eins og þær eru og vil alls ekki að þær reyni að líkjast karlmönnum. Við erum með nóg af þeim. Því hvet ég konur á öllum aldri til að halda í gildin sín og hafa trú á eiginleikum kvenna í atvinnulífinu,“ segir Hanna Dögg Maronsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Bústólpa.

Bústólpi er eitt af undirstöðufyrirtækjum landsins í matvælaframleiðslu.
Bústólpi er eitt af undirstöðufyrirtækjum landsins í matvælaframleiðslu. mbl.is/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert