Sigrún Arna Sigurðardóttir, forstöðukona vöru- og tæknisviðs íslenska hugbúnaðar-fyrirtækisins Tixly, er ánægð með að starfa hjá fyrirtæki sem valdeflir konur
„Ég er svo heppin að hafa verið umvafin sterkum kvenfyrirmyndum í gegnum tíðina og lít ég upp til allra minna nánustu kvenna, bæði í fjölskyldu og vinkvenna ásamt þeim hæfileikaríku konum sem ég hef fengið tækifæri til að vinna með í gegnum tíðina,“ segir Sigrún Arna Sigurðardóttir, forstöðukona vöru- og tæknisviðs Tixly, sem utan vinnunnar er einnig CrossFit-unnandi, hlaupari, foreldri og maki. „Ég geri mitt besta í að ná jafnvægi í leiðtogahlutverkinu, fjölskyldulífinu og áhugamálum.“
Hún segir konur í tæknigeiranum í minnihluta en er afar stolt af sínu fyrirtæki sem valdeflir konur. „Tixly er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem á og rekur Tix Miðasölu en utan Íslands sér fyrirtækið virtum menningar- og leikhúsum fyrir miðasölukerfi. Sem dæmi um viðskiptavini má nefna Hörpu, norsku óperuna, Het Concertgebouw í Hollandi ásamt Wiener Konzerthaus í Vínarborg. Fyrirtækið fór í landvinninga undir stjórn Sindra Más Finnbogasonar, stofnanda Tixly og yfirmanns vörudeildarinnar, árið 2017 með opnun í Noregi en alls starfar fyrirtækið nú í tólf löndum og starfrækir níu skrifstofur,“ segir hún og bætir við að höfuðstöðvar fyrirtækisins séu á Íslandi þar sem um helmingur starfsmanna starfar.
Starfsfólk Tixly er 58 talsins á heimsvísu og hefur nær þrefaldast frá því þau opnuðu útibú í Hollandi og Belgíu árið 2021. „Árið 2023 opnuðum við í Þýskalandi, Austurríki og Sviss og höfum við fengið frábærar viðtökur þar. Í heildina eru yfir 200 menningar- og leikhús viðskiptavinir hjá Tixly og í fyrra voru 35 nýir viðskiptavinir sem fóru í loftið. Vöruþróunin fer að mestu leyti fram í höfuðstöðvum okkar í Reykjavík þar sem hugbúnaðarteymið er og helmingurinn af vöruteyminu,“ segir Sigrún Arna.
Starfsemi upplýsingatæknifyrirtækja getur breyst mjög hratt á fáeinum árum. „Fyrstu sex árin voru Sindri Már Finnbogason og Björn Steinar Árnason meðstofnandi þeir einu sem sáu um vöruþróunina. Það eru einungis fjögur ár síðan þeir réðu inn fyrstu forritarana. Í dag er hugbúnaðarteymið 13 manns og fer ört stækkandi. Í vöruteyminu eru tveir vörustjórar sem vinna náið með hugbúnaðarteyminu og einnig með svæðisstjórum í hverju landi, síðan erum við með vörustjóra sem einblínir á útboð en við tökum mikið þátt í útboðum þegar kemur að því að fá nýja viðskiptavini,“ segir Sigrún Arna og útskýrir að svæðisstjórar séu í hverju landi þar sem þau eru með starfsstöð. Einnig séu þjónustusérfræðingar sem sjá um að styðja við viðskiptavini þeirra.
Það seljast um 16 milljónir miða í gegnum hugbúnaðinn árlega en svo mikill fjöldi hefur það ekki alltaf verið. „Árið í fyrra var virkilega gott hjá okkur. Við fögnuðum meðal annars tíu ára afmæli fyrirtækisins en Tix Miðasala var stofnuð 1. október 2014 og fyrsta daginn seldum við einn miða, með einum starfsmanni starfandi. Nú tíu árum síðar seljum við yfir 16 milljónir miða árlega fyrir yfir 200 menningar- og leikhús víðs vegar um heiminn ásamt því að reka áfram leiðandi miðasöluvef hér heima á Íslandi og þjónusta viðburðahaldara sem og aðra viðskiptavini. Til gamans má nefna að á Íslandi seljast um 900.000 miðar, af þeim 16 milljónum miða sem seljast í gegnum hugbúnaðinn okkar,“ segir Sigrún Arna og bætir við að í fyrra hafi 16 einstaklingar bæst við starfsmannahópinn og því einkenndi mikill vöxtur afmælisárið.
Sigrún Arna finnur fyrir miklum meðbyr. „Ég mun halda áfram að byggja upp það góða teymi sem við erum með hjá Tixly, í vöru- og þróunardeildinni, enda eru mörg spennandi og stór verkefni fram undan. Þar sem sérstaða okkar liggur í því að fyrirtækið var stofnað af forriturum sem starfa enn sem okkar helstu forritarar þá leggjum við mikla áherslu á nýsköpun og að þróa virkni sem gagnast viðskiptavinum okkar. Við erum þessi misserin að þróa algjörlega nýtt kaupaflæði sem mun meðal annars gagnast viðskiptavinum Tix á Íslandi ásamt því að breyta útliti á öllu bakendakerfinu til að gera það enn notendavænna, uppfæra uppbyggingu netþjóna og kóðabasans ásamt fjölmörgu öðru sem styður vöruna okkar til að halda markaðsforskoti á þeim mörkuðum sem við störfum á og á nýjum mörkuðum sem við ætlum að herja á,“ segir hún.
Þegar talið berst að kvennafrídeginum og hálfrar aldar afmæli hans segist hún spennt fyrir þeim tímamótum. „Ég nýt að sjálfsögðu góðs af þeirri mikilvægu vinnu sem hefur verið unnin síðustu áratugi en ég lít samt sem áður á þetta sem vinnu sem við erum í raun aldrei komin á endastöð með. Jafnrétti er hugarfar og réttsýni sem þarf sífellt að viðhalda, fyrir konur sem og aðra þjóðfélagshópa. Þar sem ég vinn í tæknigeiranum sem er oft álitinn frekar ríkjandi af karlmönnum finnst mér þetta sérstaklega mikilvægt; að sýna gott fordæmi og veita öðrum konum tækifæri. Vissulega hef ég upplifað mótlæti og efasemdir í mínum störfum í gegnum tíðina, og því vil ég hvetja konur til að hafa trú á sér, og hvað þá þegar við mætum mótlæti, þá eigum við að hlusta á innsæið og standa þétt við bakið hver á annarri. Ég er ótrúlega heppin að starfa hjá fyrirtæki þar sem konum er treyst fyrir leiðtogastörfum, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Hrefna Sif Jónsdóttir, sem hefur verið hjá Tixly síðan við fórum á erlenda markaði árið 2017.“
Sem leiðtogi leggur Sigrún Arna áherslu á að skapa umhverfi þar sem fjölbreytt sjónarmið eru ekki aðeins velkomin heldur einnig metin að verðleikum. „Fjölbreytni er mikilvæg fyrir nýsköpun og ákvarðanatöku,“ segir Sigrún Arna Sigurðardóttir, forstöðukona vöru- og tæknisviðs Tixly.