Jafnréttismálin órjúfanlegur hluti af fyrirtækjamenningunni

Eyrún Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar, og Sara Pálsdóttir, …
Eyrún Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar, og Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar, eru sammála um að stjórnendur eigi stóran þátt í að móta fyrirtækjamenningu og eigi að vera fyrirmyndir sem hægt er að leita til og læra af. mbl.is/Karítas

Árið 2021 var gerð breyting á framkvæmdastjórn Landsbankans og meðal annars stofnað nýtt svið, Samskipti og menning. Á þessum tímapunkti voru þrír ungir og brattir framkvæmdastjórar ráðnir til starfa, þar af tvær öflugar konur sem við ætlum að kynnast aðeins betur.

Stöðugt horft til þess að gera betur

Leiðir Eyrúnar Önnu Einarsdóttur og Söru Pálsdóttur að framkvæmdstjórastöðunum voru ansi ólíkar. Eyrún hefur starfað lengi hjá Landsbankanum, eða í rúm 18 ár, og hafði verið forstöðumaður Viðskiptalausna eignastýringar áður en hún tók við stöðu framkvæmdastjóra Eignastýringar og miðlunar. Þó Sara hafi starfað í bankanum með háskólanámi og verið hluti af teymi bankans í London eftir útskrift kom hún samt „ný“ aftur inn í bankann frá Eimskip.

Hjá Eimskip bauðst Söru staða á sölu- og þjónustusviði árið 2013 og haustið 2017 var hún fengin til að leiða innflutningsdeild félagsins. „Mitt fyrsta stjórnendastarf var hjá Eimskip árið 2011,“ segir Sara. „Þá tók ég við tímabundnu starfi sem afgreiðslustjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum. Ég fann strax hvað ég undi mér vel við að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í krefjandi verkefnum. Þegar mér bauðst að leiða innflutningsdeildina var það mikil viðurkenning fyrir mig enda yngst í söluteyminu og meðal fyrstu kvenna sem fengu tækifæri til að leiða annað af stóru söluteymum Eimskips á Íslandi.“ 

Þetta var mikil áskorun og tækifæri sem Sara tók fagnandi, enda aldrei verið hrædd við vinnu. Það eiga þær sameiginlegt og Eyrún segir: „Ég er þannig gerð að ég þarf stöðugt að hafa nóg að gera og þess vegna hefur þessi vinnustaður hentað mér mjög vel. Ég byrjaði að vinna hér við eignastýringu árið 2006 og náði því bæði mikilli uppsveiflu og svo niðursveiflu á fyrstu árunum. Það var auðvitað mjög lærdómsríkur tími. Ég hef síðan fengið mjög góð tækifæri hér innan bankans til að vaxa og þróast í starfi.“

Þetta er mikilvægur punktur og Sara og Eyrún eru sammála um að Landsbankinn sé vinnustaður sem metur starfsfólk að verðleikum og eflir það í starfi. Einnig er mjög jákvætt að í bankanum sé stöðugt horft til þess að gera betur í dag en í gær og því má alltaf finna tækifæri til framþróunar, í jafnréttismálum sem og öðru.

Fleiri konur í forsvari fyrir stór eignasöfn

„Þegar ég kom í bankann sá ég strax bæði á mælingum og svo eigin upplifun að þar höfðu jafnréttismálin færst úr því að vera sérstök áherslumál í að vera órjúfanlegur hluti af fyrirtækjamenningunni,“ segir Sara. „Hér berum við öll sameiginlega ábyrgð á jafnrétti og því verður ekki viðhaldið öðruvísi að mínu mati. Kynjahlutfallið í bankanum er jafnt á heildina litið, við erum jafnlaunavottaður vinnustaður. Það eru tækifæri til starfsþróunar fyrir alla og unnið er að því jafna hlutfall kynja í stjórnendastöðum.“

Eyrún er sammála því og bætir við að „starfsandinn hjá okkur er afskaplega góður en það þýðir líka að starfsmannavelta hefur verið mjög lítil.“ Þannig geta breytingar á kynjahlutföllum tekið tíma, sér í lagi í starfsemi á borð við eignastýringu sem hefur sögulega verið karllægt svið innan fjármálageirans. „Undanfarin ár hefur kynjahlutfallið verið nokkuð jafnt þegar ráðið hefur verið í þessar fáu stöður sem losna svo þetta stefnir í rétta átt.“

Eyrún nefnir líka aðra mjög jákvæða breytingu sem orðið hefur síðustu ár, breytinguna á hlutfalli kvenna í hópi viðskiptavina Eignastýringar og miðlunar. „Við sjáum til dæmis að fleiri konur hafa bæst í hóp fjármálastjóra fyrirtækja og nú eru æ fleiri konur í forsvari fyrir eignasöfn stærri viðskiptavina, sjóðstjórar og starfsfólk lífeyrissjóða. Eins sýna gögnin okkur að konur eru í meira mæli að ráðstafa sparnaði heimilisins. Þegar gögn yfir viðskipti haustsins með verðbréfasjóði eru skoðuð kemur fram að karlar eiga fleiri viðskipti en fjárhæðirnar eru hærri hjá konum sem er athyglisvert,“ segir Eyrún. „Ég hef þess vegna ekki áhyggjur af stöðunni eða að við séum á einhvern hátt að staðna í þessari vinnu.“

Sara segir að óskastaðan sé að Landsbankinn sem vinnustaður endurspegli fjölbreytileika samfélagsins sem hann er órjúfanlegur hluti af. Sviðið Samfélag og menning var stofnað til að samræma enn betur skilaboð og efla tengsl bankans við viðskiptavini, starfsfólk og samfélagið allt. Innra starf og fyrirtækjamenning þarf að endurspegla skilaboðin út á við og bankinn getur haft mikil áhrif bara með fordæmi sínu. Til að tryggja framþróun er mikið lagt upp úr öflugri fræðsludagskrá fyrir starfsfólk og kvennaárið 2025 er engin undantekning: Áfram verður lögð áhersla á jafnrétti og fjölbreytileika í víðum og dýpri skilningi. „Viðfangsefnin okkar í Samfélagi og menningu eru oft kölluð mjúku málin, aðallega af þeim sem lítt þekkja til,“ segir Sara. „Það að framkalla jákvæð áhrif á ásýnd fyrirtækis og á hvernig fólk upplifir vörur, þjónustu eða vinnuumhverfið sitt er lykillinn að grjóthörðum árangri heildarinnar!“

Fyrirmyndir til framtíðar

Stjórnendur eiga að sjálfsögðu stóran þátt í að móta fyrirtækjamenninguna og eiga að vera fyrirmyndir sem hægt er að leita til og læra af. „Ég hef í gegnum tíðina átt auðvelt með að finna mér fyrirmyndir í framúrskarandi stjórnendum, bæði konum og körlum,“ segir Sara. Þar er Landsbankinn engin undantekning en bankinn nýtur þess að eiga margar öflugar konur innan sinna raða sem koma reglulega fram fyrir hönd bankans.

„Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri er mikill leiðtogi sem horft er til innan bankans og víðar úr atvinnulífinu,“ segir Eyrún. Sara bætir við að forstöðumaður sjálfbærniteymis bankans, Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sé mikils metin bæði hérlendis og erlendis sem einn fremsti sérfræðingur í þessu mikilvæga málefni og Una Jónsdóttir aðalhagfræðingur bankans er ósjaldan í fjölmiðlum að skýra þróun efnahagsmála á mannamáli.

Þó að Eyrún og Sara láti vel af stöðu jafnréttismála hjá Landsbankanum og sjái jákvæða þróun í kynjahlutföllum, bæði starfsfólks og viðskiptavina, eru þær sammála um að við eigum stöðugt að horfa til framtíðar og leita leiða til að gera betur. Örar breytingar í samfélaginu bæði hér heima og á alþjóðavettvangi skapa nýjar áskoranir og tækifæri sem teymið í Landsbankanum er tilbúið til að takast á við af fullum krafti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert