Miklir fagnaðarfundir þegar fyrsta stjórn FKA kom saman á 25 ára afmælisárinu

Hansína B. Einarsdóttir, Edda Sverrisdóttir, Dagný Halldórsdóttir, Jónína Bjartmarz, Hildur …
Hansína B. Einarsdóttir, Edda Sverrisdóttir, Dagný Halldórsdóttir, Jónína Bjartmarz, Hildur Petersen, Aðalheiður Héðinsdóttir og Linda Pétursdóttir mynduðu fyrstu stjórn FKA sem fyrst var Félag kvenna í atvinnurekstri en varð síðar Félag kvenna í atvinnuífinu. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta stjórn FKA hittist í lok árs 2024 og átti notalega stund með núverandi stjórn FKA og framkvæmdastjóra félagsins. Miklir fagnaðarfundir á gefandi stundu þar sem kostulegar sögur af sigrum og breyttu samfélagi voru sagðar á færibandi.

Það var fyrir aldarfjórðungi sem Jónína Bjartmarz fór fyrir fjögurra kvenna hópi sem áttu frumkvæðið og veg og vanda að undirbúningi og framkvæmd stofnfundar FKA sem þá var Félag kvenna í atvinnurekstri. Í dag stendur FKA fyrir Félag kvenna í atvinnulífinu og hefur aldrei verið stærra með sterkar deildir, landsbyggðadeildir um land allt, öflugt nefndarstarf, góð alþjóðatengsl, hreyfiaflsverkefni sem hafa áhrif á samfélagsumræðuna og vigt er kemur að málum málanna. Við skulum fara í tímavélina með fyrstu stjórn FKA.

Halló, er Hillary Clinton heima?

„Það var engin önnur leið en að fara bara beint að henni,“ segir Jónína Bjartmarz, fyrsti formaður FKA, sem gerði sér lítið fyrir og hringdi í Hillary Clinton árið 1999 til að óska eftir nærveru hennar þar sem nýstofnað félagið ætlaði að heiðra konu á sínu fyrsta starfsári.

„Þrjár stuttar og ein löng,“ bætir Aðalheiður Héðinsdóttir við og brosir þegar hún rifjar upp að Jónína hafi tekið upp tólið á skífusíma með snúru. „Where are you calling from? Who are you?“ bætir Jónína brosandi við þegar hún rifjar upp viðbrögð aðila Hvíta hússins sem svaraði símanum.

„Jæja stelpur, við búum til einhver verðlaun til að gera konur í atvinnurekstri sýnilegar. Við verðum bara að veita svona verðlaun,“ rifjar Hansína stolt upp

Geir Ólafsson tók þessa mynd af fyrstu stjórn FKA en …
Geir Ólafsson tók þessa mynd af fyrstu stjórn FKA en myndin birtist fyrst í Frjáls Verslun árið 1999. Ljósmynd/Aðsend

Hlátrasköll langt út á götu.

Fyrsta stjórn FKA hittist í lok árs 2024 og átti notalega stund með núverandi stjórn FKA og framkvæmdastjóra félagsins. „Ég var búin að hlakka til að sjá þetta gerast í tvö ár og svakalega ánægjulegt að allar komust til að ljúka 25 ára afmælisári FKA saman,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA.

Opinn faðmur og hlátrasköll langt út á götu þegar hópurinn leit um öxl og farið var yfir það sem fyrsta stjórn félagsins áorkaði með viljann og gleðina að vopni. „Hvað með hana Hillary stelpur? Það var bara tekið upp tólið og hugsað stórt. Hillary var væntanleg til Íslands og við byrjuðum á að tala við Utanríkisráðuneytið sem gat ekkert gert þannig að við óðum í málið. Þetta voru mörg símtöl og fax til að fá hana til að veita fyrstu FKA viðurkenningunni viðtöku,“ segir Jónína sem veitti Hillary FKA viðurkenninguna árið 1999 og hefur Viðurkenningarhátíð FKA verið haldin síðan. Þess má geta að stórglæsileg FKA Viðurkenningarhátíðin verður næst haldin í dag, þann 29. janúar 2025 á Hótel Reykjavík Grand, en hægt verður að horfa á viðburðinn í beinni á mbl.is.

Alltaf á að hafa gaman og skemmtilegt

Aðalheiður Héðinsdóttir, Dagný Halldórsdóttir, Edda Sverrisdóttir, Hansína B. Einarsdóttir, Hildur Petersen, Jónína Bjartmarz og Linda Pétursdóttir mynduðu fyrstu stjórn FKA, félag sem fyrst var Félag kvenna í atvinnurekstri en varð síðar Félag kvenna í atvinnulífinu. „Ég man þegar Jónína hringdi í mig þegar hún var að setja saman þessa fyrstu stjórn,“ rifjar Dagný upp. „Ég hafði alltaf unnið í mjög karllægu umhverfi og var greinilega undir áhrifum þess því mér þótti það framandi að taka þátt í svona kvennastússi. En ég sló til og sé ekki eftir því,“ bætir Dagný við. „Mikið var þetta skemmtilegt,“ og allar taka undir það og bæta við að Edda hafi verið sú sem minnti þær ávallt á að hafa gaman og skemmtilegt sem sannarlega laðaði konur að félaginu.

„Ertu búin að tala við manninn þinn? Það er ekki lengra síðan að konur fengu þessa spurningu frá bankastjóranum,“ segir Edda sem lengi var kaupmaður í Flex Bankastræti

„Við þurftum að brjótast út úr þessu. Merki um tíðarandann þegar það var dregið í efa að við konur værum að gera merkilega hluti. Konur voru ekki að gera neitt,“ segir Jónína glottandi og stolt af sínum konum. „Ég þekkti enga af þeim þegar ég setti stjórnina saman. Engar vinkonur mínar heldur ólíkar konur og framsýnar sem voru tilnefndar og svo kosið,“ bætir Jónína við.

„Ég er að eilífu þakklát að hafa fengið að tengjast þessum hóp,“ segir Dagný og allar taka undir.

Fyrsta stjórn FKA og núverandi stjórn FKA hittust í lok …
Fyrsta stjórn FKA og núverandi stjórn FKA hittust í lok árs 2024 og átti saman hugljúfa stund. ljósmynd/Silla Páls

Ævintýrið hófst með því að Jónína hringdi í konurnar, meðal annars Dagnýju og hvatti hana og þær allar til að gefa kost á sér í stjórnina. Áhersla var á fjölbreytileika, breiða þekkingu og tengslanet. „Ég þekkti enga þeirra persónulega heldur var haft samband við konur sem dekkuðu eða höfðu tengsl inni mismunandi hópa, svo sem Brautargengi, kvennasamtökin Business and Professional Women eða BPW svo eitthvað sé nefnt,“ segir Jónína dreymin á svip – og ævintýrið heldur áfram því félagið hefur aldrei verið stærra og 25 ár liðin frá því að Jónína lagði grunn að því sem við þekkjum. Hún var ekki bara fyrsti formaður FKA heldur jafnframt eins konar „guðmóðir“ þessarar fyrstu stjórnar og FKA. Fyrir það erum við þakklátar.

Dyravörður þegar Linda var krýnd Ungfrú Ísland

Í núverandi stjórn FKA eru Unnur Elva Arnardóttir formaður, Andrea Ýr Jónsdóttir, Grace Achieng, Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Guna Mežule varakona, Helga Björg Steinþórsdóttir, Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, Jasmina Vajzovic Crnac varakona og Sandra Yunhong She sem einnig er varakona í stjórn. „Linda, ég var dyravörður þegar þú varst kosin Ungfrú Ísland á Hótel Íslandi,“ segir Unnur Elva formaður glöð í bragði sem starfaði við dyravörslu í hjáverkum og var fyrsta konan sem ráðin var í lögguna á Akureyri.

Það er óhætt að segja að Linda Pétursdóttir er ein sú allra glæsilegasta og gaman að fylgjast með henni og öðrum stjórnarkonum, konum sem hafa verið óhræddar við að gera tilraunir, skapað sig og endurskapa. Svo ekki sé minnst á allar þær sem hafa rutt brautir fyrir þær sem á eftir koma.

„Það er enn verið að tala um þennan glæsta hóp sem fór til Barcelona fyrsta ári félagsins,“ segir Jónína og horfir á Eddu sem seldi glæsilegan fatnað og fylgihluti í Flex á þessum árum. „Fórum átján konur saman og hópmyndin sem var tekin af okkur er sú flottasta sem ég á,“ segir Jónína.

Kanónur og karllæg gildi

„Þegar við byrjuðum í stjórninni árið 1999 þá voru konur að hasla sér völl og nokkrar kanónur eins og Hildur Petersen og svona. Við vildum láta taka okkur alvarlega. Vildum vera á eigin forsendum,“ segir Aðalheiður. „Það voru karllæg gildi, meira en núna, og það sem mér fannst merkilegt í þessari stjórn er að ég þekkti engar svona konur eins og þessar stjórnarkonur. Edda, þessi skvísa, minnti okkur á að halda kvenlegum gildum á lofti og vera í hávegum höfð,“ bætir Aðalheiður við.

Unnur Elva Arnarsdóttir, núverandi formaður FKA, og Jónína Bjartmarz, fyrsti …
Unnur Elva Arnarsdóttir, núverandi formaður FKA, og Jónína Bjartmarz, fyrsti formaður FKA. ljósmynd/Silla Páls

Tíðarandinn var sannarlega annar og mikill töffaraskapur að ætla sér að fara inn á eigin forsendum en ekki á forsendum karlanna, upphefja kvenleg gildi, láta til sín taka og hafa áhrif – og skífusíminn berst aftur í tal.

„Munið þið þegar við undirbjuggum stofnun Kvennaathvarfsins á níunda áratugnum? Við fengum styrk til að halda opnum skífusíma í fimm daga og töldum samviskusamlega hvað við tókum við mörgum símtölum,“ spyr Hansína hópinn. „Við þurftum að sanna að það væru konur hér á landi sem urðu fyrir ofbeldi. Við héldum því fram að Ísland vær ekki undantekning. Við höfðum jú rannsókn sem birt var árið 1982 eftir Hildigunni Ólafsdóttur, Sigrún Júlíusdóttur og Þorgerður Benidiktsdóttir þar sem þær höfðu safnað og greint upplýsingar meðal annars frá slysó en þar kom til dæmis fram í skráningum að konur sem voru marðar og barðar, að þær hafi gengið á hurð, skápahurð slegist í þær, dottið niður stiga og þannig má lengi telja,“ bætir Hansína við.

„Við vonuðumst til að það yrði hlustað á okkur ef það myndi koma ákveðið magn af símtölum og því miður stoppaði síminn ekki. Nú öllum þessum árum síðar er það íslensk kona, Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, sem er ein þeirra hundrað kvenna sem talin er ein af hundrað áhrifamestu konum í heimi að mati BBC. Ég er stolt af íslenskum konum. Með samstarfi, skilningi og óeigingjörnu starfi höfum við ná ótrúlega langt,“ bætir Hansína við alvarleg.

Það var um margt að ræða þegar fyrsta stjórn FKA …
Það var um margt að ræða þegar fyrsta stjórn FKA hitti núverandi stjórn FKA. ljósmynd/Silla Páls

Ferillinn byrjaði hjá Steinunni í Tíu dropum

Það var kaldur og bjartur dagur þegar fyrsta stjórn FKA mætti á stefnumót við núverandi stjórn og framkvæmdastjóra félagsins á Vínstúkunni Tíu sopar á Laugavegi 27 í Reykjavík. „Gaman að vera hér því þessi staður hét áður Tíu dropar og Steinunn vinkona mín rak staðinn. Þegar staðurinn var svo opnaður seinna sem Tíu sopar þá var mikið af dótinu hér, verslað í Portinu og þá var ég var hluti af því. Skemmtileg tenging,“ segir Edda sem tók þátt í að byggja upp Portið fyrir fáeinum árum sem lifir enn góðu lífi sem skemmtilegur markaður í Kópavogi með gamalt góss og allskonar gersemar.

„Ég var hérna líka með tíu eða fimmtán kaffinámskeið þegar ég var að byrja,“ segir Aðalheiður. Addý eins og hún er gjarnan kölluð er stofnandi Kaffitárs en hún kom heim með brennsluofn í farteskinu þegar hún og maðurinn hennar heitinn, sem stundaði nám erlendis, komu heim og frá þeim tíma tók Addý þátt í að móta kaffimenningu hér á landi sem við þekkjum í dag. „Fyrsta námskeiðið var heima hjá mér og svo einmitt hér á þessum stað hjá Steinunni Bergsteinsdóttur sem tók mér afar vel þegar ég var að undirbúa fyrstu kaffikynninguna. Höfum kynninguna í Tíu dropum sagði Steinunn og ég verð henni ævinlega þakklát,“ segir Addý brosandi og hugsi. „Steinunn reddaði mér auglýsingu og hún gafst ekki upp á þessari stelpu sem stamaði, sletti og hikaði.“

Þjóninn kom að borðinu og óhætt er að fullyrða að allur hópurinn getur mælt með smáréttum á Vínstúkunni Tíu sopum. „Frábær matur, dásamleg þjónusta og viðmót,“ sögðu konurnar sem héldu glaðar út í daginn. „Pabbi þinn var með mér í skóla,“ segir Linda við þjóninn og ber fyrir kveðju í lokin. En ekki hvað? Algjörlega geggjað dæmi um hvernig þessi fámenna þjóð á þessu stóra landi tengist gjarnan og í nákvæmlega því felst svo mikil fegurð - býður upp á einstakt tækifæri til að láta málin okkur varða.
Takk fyrir ykkur öll sem rutt hafa brautir og tekið ýmislegt á kassann fyrir okkur sem eftir koma. Takk fyrir að stofna FKA sem enn á erindi. Jafnrétti er mannréttindi og ef misrétti er mannanna verk þá er jafnréttið það líka. Sjáumst á Kvennári 2025 sem nú gengur í garð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert