Töframáttur samfélagsmiðla er mikill

Auður Elísabet, Elín Arnar og Inga Margrét, eigendur Birtu Media.
Auður Elísabet, Elín Arnar og Inga Margrét, eigendur Birtu Media. mbl.is/Karítas

Elín Arnar, einn stofnenda Birtu Media, segir mjög hagkvæmt að útvista kynningarmálum til þeirra. 

„Heimur vefmiðla kenndi mér ýmislegt um töframátt samfélagsmiðla, leitarvélabestun og algoriþma. Í dag er ég því búin að endurmennta mig sem stafrænn markaðssérfræðingur og nýti fyrri reynslu við framleiðslu á grípandi efni fyrir samfélagsmiðla og veraldarvefinn ásamt meðeigendum mínum, Auði Elísabetu Jóhannsdóttur og Ingu Margréti Jónsdóttur, í Birtu Media,“ segir Elín Arnar, rit- og framleiðslustjóri Birtu Media. Elín starfaði um árabil við margvísleg verkefni í kvikmyndagerð áður en hún sneri sér að fjölmiðlun þar sem hún ritstýrði bæði prent- og vefmiðlum.

Birta Media er fyrirtæki sem býður litlum og meðalstórum fyrirtækjum upp á áskrift að markaðsdeild. „Við erum í raun framlenging af þeim fyrirtækjum sem eru í áskrift hjá okkur og við vinnum mjög náið með viðskiptavinum okkar. Sum vilja mikil samskipti en öðrum hentar vel að við sjáum bara um ákveðna hluti þannig að þau þurfi ekkert að spá meira í það. Teymið samanstendur svo af sérfræðingum á mismunandi sviðum sem áskrifendur okkar hafa aðgang að eftir þörfum. Áskriftargjaldið er föst upphæð sem ákveðin er fyrir fram eftir umfangi.“

Náðu að tvöfalda veltuna á milli ára

Elín er einn af stofnendum fyrirtækisins. „Við stofnuðum Birtu Media 1. febrúar 2022 þannig að við eigum þriggja ára afmæli um þessar mundir. Kveikjan að Birtu Media kom þannig til að við Auður Elísabet og Inga Margrét vorum allar að vinna við RIFF-kvikmyndahátíð og fundum að við vorum gott teymi og ákváðum því að starfa saman áfram. Hugmyndin að baki viðskiptamódelinu kom svo til af því að við fundum að á markaðnum væri mikil þörf fyrir hjálp í stafrænni markaðssetningu og að líta vel út á veraldarvefnum.“

Elín er ánægð með rekstrarárið í fyrra. „Við náðum að skerpa á stefnu fyrirtækisins og tvöfalda veltuna frá árinu á undan,“ segir hún.

Aðspurð um viðskiptavinahópinn segir Elín hann mjög fjölbreyttan. „Konur, karlar og fyrirtæki skipuð fólki af öllum kynjum leita til okkar því það er mikið að gera hjá þeim og við bjóðum hagstæða áskriftarpakka.“

Stafræn markaðssetning hefur opnað dyrnar fyrir mörgum sem hefðu kannski ekki haft mikið bolmagn til að auglýsa á hefðbundinn hátt hér áður fyrr. „En jafnframt getur hún verið flókin og þróast hratt. Það er því mikilvægt að vera á tánum, með opinn huga, og fylgjast vel með þróun mála. Það getur verið margslungið að ætla sér að gera allt sjálfur því til þess þarf maður að kunna til verka á sviði ljósmyndunar, grafískrar hönnunar, textagerðar, kvikmyndagerðar og stafrænnar markaðssetningar á Meta, Google og öllum hinum forritunum sem sjá til þess að allt sé upp á tíu. Það voru því engar ýkjur þegar einhver spáði því hér á síðustu öld að margmiðlun væri framtíðin.“

Þegar staða kvenna er rædd í samfélaginu, og þau 50 ár sem liðin eru frá því fyrsti Kvennafrídagurinn var haldinn með pomp og prakt, segist Elín finna fyrir miklu þakklæti. „Ég er fyrst og fremst þakklát fyrir allar þær kjarnakonur sem ruddu veginn fyrir okkur hinar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert