„Félag kvenna í atvinnulífinu hefur verið leiðandi hreyfiafl í rúman aldarfjórðung og það ætlum við að vera áfram. Það er mikilvægt að konur njóti sannmælis og að samfélagið njóti sérfræðiþekkingar og reynslu allra kynja,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA full tilhlökkunar fyrir öflugu Kvennaári sem nú er hafið.
„Það er mjög góð tilbreyting að kvenleg gildi og húmor séu að trenda núna,“ segir Andrea glöð í bragði við undirbúning á Viðurkenningarhátíð FKA.
„Við þurfum að þekkja sögur af konum til að segja þær og láta þær vita að þær eiga erindi. Við þurfum að þekkja konur til að versla við þær, mæla með þeim, kjósa þær og þannig má lengi telja. Kennslubókasagnfræðin er eins og hún er og ég hef svakalega mikla ánægju af því að skrifa viðurkenningarhafa, konur, inn í söguna. Hátíð sem þessi er mikilvæg einmitt vegna þess og mikilvægt að komandi kynslóðir hafi fyrirmyndir, sem við klöppum upp ár hvert, til að máta sig við. Við þurfum líka að minna okkur á að ekkert er gefið er kemur að jafnréttinu og félag eins og FKA er breiðfylking sem á enn erindi.“
„Sumir fréttatímar eru á við að lesa allan bæklinginn um leiðindi og orð ná ekki utan um viðbjóðinn sem er í gangi víða. Þá höfum við mikla forgjöf hér á landi og ég persónulega hef margt að þakka fyrir eins og góðar vinkonur sem eru mitt velferðarkerfi. Svo fegurðin í mörgu eins og að þú getir mögulega hitt forsetann í sundi eða að forsetinn standi grillvaktina á fótboltamóti er náttúrulega algjörlega einstakt. Þá ber ég sturlaða virðingu fyrir þeim sem hafa rutt brautina fyrir mig og búið til þessa stemningu í samfélaginu, þetta sammannlega og sveitó sem mér finnst notalegt. Svo eru það þjóðargersemar eins og Vigdís Finnbogadóttir og áhrif sem hún hefur haft um heim allan og verðskuldað Vigdísaræði sem er æsispennandi og stendur sem hæst,“ segir Andrea og brosir út í annað.
„Ég var ráðstefnustjóri fyrir örfáum árum í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem Vigdís var meðal gesta og að ráðstefnu lokinni spyr ég Vigdísi hvort ég eigi ekki að skutla henni heim. Hún þiggur það og þegar ég sé Agnesi M. Sigurðardóttir biskup Íslands standa þarna rétt hjá spyr ég hana hvort hún vilji ekki far líka. Ég fer út á bílaplan, færi íþróttatöskuna til í aftursætinu svo að biskupinn fái pláss. Vigdís sest fram í og svo þar sem ég er að keyra, með Vigdísi við hlið mér í farþegasætinu og sé Agnesi biskup í baksýnisspeglinum í aftursætinu, hugsa ég með mér: „Hvar annars staðar en á Íslandi?““ segir Andrea.
„Þetta er svo verðmætt, séríslenskt og mikilvægt að varðveita. Þetta var það sérstök stund fyrir mér að ég tók ekki einu sinni sjálfu, heldur ákvað að vera í augnablikinu og taka þessa stund inn. Ég og við allar stöndum á öxlum kvenna sem hafa á undan okkur gert stórkostlega hluti eins og Vigdís.“
„Ef þú ert kona sem vill láta til sín taka, setja þig á dagskrá og hafa áhrif í félagi eins og FKA þá er það í boði. Það eru tækifæri til að hafa áhrif á samfélagsumræðuna og dagskrárvald í félagi sem þessu. Ég vil nota tækifærið til að minna konur á nokkuð sem hefur reynst mér vel. Það er að ofurkonan er dauð og „Good enough“ er lykilsetning. Muna að eitt skipti í viku af einhverju gera 52 skipti yfir árið og hvort sem það er að sækja fund, fræðslu eða efla þig á einhvern hátt er það sannarlega að telja. Það er ekkert verið að tala um að demba sér í eitt né neitt, þú getur bara byrjað á að skrá þig til leiks. En það er samt í boði og fyrir konur sem vilja fara á bólakaf í fjörið hjá FKA vil ég líka minna á að við kjósum formann á aðalfundinum í maí,“ segir Andrea, sem er spennt að sjá hvaða formanni hún muni vinna með næst.
„Það er oft innistæða fyrir Ísland að hnykla jafnréttisvöðvana á alþjóðavísu og segja stolt frá jafnréttisparadísinni Íslandi en það er verk að vinna. Meintar allsnægtir allra hér á landi standast ekki alltaf skoðun.“