Í nóvember 2014 var 31,2% hlutur Landsbankans í félaginu Borgun hf. seldur til félagsins Borgun slf., en eigendur þessu eru félagið Orbis Borgunar slf., Stálskip ehf., P126 ehf. sem er í eigu Einars Sveinssonar í gegnum móðurfélagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúxemborg. Þá á félagið Pétur Stefánsson ehf. einnig hlut í Borgun slf., en forsvarsmaður þess er Sigvaldi Stefánsson. Söluverðmæti hlutarins var 2.184 milljónir. Gagnrýnt var að félagið hafi ekki farið í opið söluferli. Í janúar 2016 var upplýst um að Borgun auk Valitors myndu hagnast verulega vegna yfirtöku Visa international á Visa Europe. Sagði Morgunblaðið að um væri að ræða samtals á annan milljarð.